Við sem erum fædd nítjánhundruð-og eitthvað þekkjum öll kókoskúlurnar sem fást í bakaríum. Þéttar, dökkar og með örlitlu rommbragði, hjúpaðar súkkulaði og velt upp úr kókos. Hvað ef það væri hægt að fá svoleiðis nema bara í svolítið næringarríkari útgáfu? Það er ekkert nýtt að gera kókoskúlur úr döðlum og velta upp úr kókos. Ég hef gert þúsund útgáfur af slíkum kúlum og sjaldnast eru þær eins. Þessar eru hins vegar eitthvað allt annað. Þær eru bara nákvæmlega eins og þessar gömlu! Það er líklega vegna þess að ég set aðeins rommdropa, hjúpa þær upp úr 70% súkkulaði og velti síðan upp úr kókos. Og fyrir utan það set ég smá próteinduft í þær sem gerir þær extra djúsí. Þið bara verðið að prófa!
Innihald:
- 500g döðlur frá Rapunzel
- 3 msk. kakó, ég nota frá Rapunzel
- 4 msk. súkkulaðiprótein
- 3 msk. kókos- og möndlusmjör með döðlum, frá Rapunzel
- 4 msk. hafrahveiti
- 3 msk. kókosmjöl, ég notaði frá Rapunzel
- ½ tsk. sjávarsalt, má vera meira ef þið viljð
- 1 msk. hunang
- 1 tsk. rommdropar
- 2-3 msk. vatn
- 160g 70% súkkulaði frá Rapunzel
- Nóg af kókosmjöli til að rúlla upp úr
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefni nema vatnið og súkkulaðið í matvinnsluvél og leyfið henni að vinna á þessu í nokkrar sekúndur. Stoppið þá og bætið 2 msk. af vatni saman við og setjið vélina aftur í gang, látið hana vinna í ca. hálfa mínútu og bætið þá við 1 msk. af vatni ef ykkur finnst þess þurfa.
- Látið vélina vinna deigið þannig að það sé mjög þétt, samfellt og auðvelt að móta kúlur, þannig að engir bitar séu eftir af döðlunum.
- Takið klípu af deigi, mér finnst gott að nota teskeið, og rúllið í kúlur. Setjið þær á bökunarpappír sem settur er á bakka eða bretti. Ég hef kúlurnar í stærra lagi, líklega um 3 cm í þvermál.
- Þegar búið er að rúlla upp allar kúlurnar eru þær settar í kæli á meðan súkkulaðið er brætt.
- Saxið súkkulaðið og setjið í djúpan disk. Bræðið það í örbylgjuofninum, stoppið ofninn á 15 sekúndna fresti og hrærið í. Þegar nokkrir bitar eru eftir óbræddir takið þið súkkulaðið út og hrærið. Leyfið restinni að bráðna þannig.
- Setjið ríflegt magn af kókosmjöli í annan djúpan disk og setjið við hliðina á súkkulaðinu.
- Takið kúlurnar úr kæli og leggið hjá súkkulaðinu og kókosmjölinu. Dýfið hverri kúlu í súkkulaðið, látið það renna vel af – alveg þannig að það sé ekkert að leka lengur og færið þá yfir í kókosmjölið og rúllið kúlunni upp úr kókosmjölinu. Leggið þá kúluna á bakkann og endurtakið þar til öllum kúlunum hefur verið dýpt í súkkulaði og kókos.
- Setjið þær í kæli og leyfið súkkulaðinu að harðna alveg. Þá er hægt að taka þær af bakkanum og setja í box og setjið aftur í kælinn. Þær eru bestar ískaldar!
- Kókoskúlurnar eru mjög góðar þegar þær eru nýjar en allra bestar þegar þær hafa fengið að taka sig í kælinum í sólarhring.





Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

