Þessar flatkökur eru afrakstur smá tilraunastarfsemi eftir að hafa bakað naan brauð eftir uppskrift Kat frá The loopy whisk. Þær eru mjúkar, halda lögun sinni vel og bragðast eins og þessar allra bestu íslensku. Eins og með allar glútenlausar uppskriftir mæli ég með því að fara 100% eftir uppskriftinni og nota helst einungis þau hráefni sem ég tel upp. Ég ábyrgist að minnsta kosti ekki útkomuna ef einhverju er breytt, hvort sem er innihaldsefnum eða aðferð.
Þær eru ótrúlega einfaldar, smá föndur er í kringum það að fletja þær út og móta en það er bara sama vinna og við venjulegar flatkökur. Ég baka þær á þurri steypujárnspönnu og mæli með því að gera það. Það er alls ekki hægt að baka þær á teflon pönnu (útkoman verður ekki eins og hún á að vera og hægt er að skemma teflon pönnur ef þær eru hitaðar svona mikið) en mögulega væri hægt að nota íslenska pönnukökupönnu ef þið eigið ekki steypujárnspönnu og svo auðvitað beint á steypta hellu ef þið eigið slíka. Þessar er hægt að frysta og taka svo bara út eftir þörfum.
Loksins er hægt að njóta þess að borða almennilegar flatkökur! Fullkomnar í nestið, kaffitímann eða jafnvel á veisluborðið.
Innihald:
- 360g hvítt maísmjöl (ekki maízena heldur Harina de mas – blanco frá PAN, fæst í Fiska.is)
- 130g tapíóka mjöl (fæst í Fiska.is líka)
- 12g sykur
- 9g salt
- 7g glútenlaust lyftiduft, ég notaði frá Dove/freee
- 420g volgt vatn, um 40°C
- 20g husk
- 75g grísk jógúrt, það væri örugglega hægt að nota súrmjólk líka, passið að jógúrtin sé við stofuhita
- 30g jurtaolía
Aðferð:
- Setjið hvítt maísmjöl, tapíóka mjöl, sykur, salt og lyftiduft í skál og hrærið vel saman. Setjið til hliðar.
- Vigtið 420g af volgu vatni og huski saman í skál. Látið bíða í nokkrar mínútur.
- Setjið jógúrt og olíu saman við vatnið/huskið og blandið vel saman.
- Hellið blautu hráefnunum út í þurrefnin og hrærið vel með sleif. Þegar deigið fer að koma saman, skafið þá deigið af sleifinni og hnoðið með höndunum. Deigið á að vera frekar þétt í sér, alls ekki svo blautt að það klístrist mikið en þó ekki þurrt. Það á að vera hægt að móta það í kúlu.
- Skiptið deiginu í 8 jafna hluta. Best er að vigta heildina og deila í 8. Mínar voru á milli 114 og 115g.
- Takið hvern hluta og mótið kúlu og fletjið hana aðeins út með höndunum og mótið í „disk“.
- Endurtakið við allar kúlurnar og geymið þær undir plastfilmu.
- Klippið út 8 bökunarpappírsbúta – ca. 20x20cm.
- Fletjið hvern hluta út í hring, nægilega stóran svo 18cm diskur passi yfir, leggið disk yfir og skerið meðfram. Stingið þá kökuna nokkrum sinnum með gaffli.Geymið afskurðinn undir plastfilmunni. Varist að fletja deigið samt of mikið út svo kökurnar verði ekki of þunnar. Það er frekar betra að það vanti aðeins upp á kantinn en þá er hægt að klessa smá deigi þar við.
- Setjið útflatta köku á bretti og leggið einn bökunarpappírsbút yfir og leggið viskastykki þar yfir. Bökunarpappírinn set ég á milli svo kökurnar festist ekki saman og viskastykkið passar að þær þorni ekki of mikið.
- Endurtakið með alla hlutana. Takið þá afskurðinn og mótið litla flatköku.
- Hitið steypujárnspönnu vel upp. Gefið ykkur góðan tíma í að hita hana en hún verður að vera alveg brennheit þegar flatkökurnar eru bakaðar.
- Takið til glæran plastpoka, ég notaði rennilásapoka sem mér fannst mjög þægilegt upp á að geta lokað honum síðar.
- Bakið fyrstu flatkökuna, mér finnst gott að byrja á þeirri sem ég gerði úr afskurðinum. Þegar hún er orðin vel bökuð og svolítið brennd, snúið henni við og bakið þar til ykkur finnst hún orðin passlega brennd. Setjið hana þá inn í pokann, leggið bökunarpappírsbút (sem losnar þegar þið bakið kökurnar) yfir flatkökuna og lokið pokanum.
- Bakið allar flatkökurnar svona. Þegar þær eru tilbúnar, leggið þær þá ofan á næstu sem er með bökunarpappír yfir sér (nauðsynlegt svo þær klessist ekki saman).
- Njótið með hverju sem ykkur dettur í hug en mitt allra besta kombó er hið íslenska, klassíska: Flatkaka með hangikjöti og kókómjólk!






Sæl. Mig langar að vita hvernig þú geymir glútenlausu flatkökurnar. Hvort þú frystir þær?
Takk fyrir góða spurningu! Já, ég frysti þær um leið og þær hafa kólnað og tek síðan út eftir þörfum 😊 Mér finnst best að láta þær þiðna á borði sem tekur enga stund og hita þær jafnvel aðeins aftur á pönnu ef ég vil hafa þær volgar.