Stundum langar mann bara í eitthvað bragðmikið sem vermir hjarta og sál – án þess að eyða of miklum tíma í eldhúsinu. Þessi réttur er einmitt þannig. Úrbeinuð kjúklingalæri eru látin marinerast stutta stund í Tandoori kryddmauki sem gefur bæði fallegan lit og djúpt kryddbragð sem er alls ekki of sterkt. Þau eru síðan brúnuð á pönnu ásamt sætum lauk og fá síðan að krauma í ljúffengri indverkskri Butter Chicken sósu með skvettu af rjóma. Þetta er lygilega fljótlegt en bragðast eins og þið hafið staðið í eldamennsku allan daginn.
Tímasetningarnar passa líka svo vel – á meðan kjúklingurinn mallar eru hýðishrísgrjónin soðin sem ég strái svo söxuðum pistasíum yfir. Naanbrauðin hitið og að lokum pensluð með hvítlaukssmjöri og sjávarsaltflögum stráð yfir. Fullkomið!
Innihald:
- 700g Rose úrbeinuð kjúklingalæri
- 2 msk. Tandoori kryddmauk frá Patak‘s
- Salt og pipar
- 1 msk. kókosolía
- 1 laukur
- 1 krukka Patak‘s Butter Chicken sósa
- 1 dl. rjómi
- Möndluflögur
- Ferskt kóríander
- 1 bolli hýðishrísgrjón
- Pistasíuhnetur saxaðar, magn eftir smekk
- Naan brauð
- Hvítlaukssmjör
- Sjávarsalt flögur
Aðferð:
- Þýðið kjúklingalærin og snyrtið þau ef þarf.
- Setjið þau í skál ásamt Tikka Masala kryddmauki, saltið og piprið og blandið vel saman. Látið marínerast í 30 mín.
- Skerið laukinn í tvennt og svo þunnar sneiðar. Hitið kókosolíu á pönnu og steikið laukinn þar til hann verður mjúkur og byrjar að brúnast, það tekur um 5 mín.
- Takið laukinn af pönnunni og brúnið kjúklingalærin vel.
- Setjið laukinn því næst yfir kjúklinginn og hellið Butter Chicken sósunni og rjómanum yfir og látið malla á rólegum hita í 15 mín.
- Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Þegar þau eru soðin, stráið þá söxuðum pistasíum yfir.
- Hitið naanbrauðin, penslið með hvítlaukssmjöri og stráið fersku kóríander og sjávarsalti yfir.
- Rétt áður en kjúklingurinn er borinn fram er gott að strá möndluflögum yfir og jafnvel meiru af fersku kóríander ef þið viljið.








Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

