Guðdómleg gulrótarkaka með ristuðum pekanhnetum & rúsínum

Gulrótarkökur hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og þessi uppskrift er ein af mínum uppáhalds. Ég veit í sannleika sagt ekki af hverju ég hef ekki sett hana fyrr á síðuna en hún klárast alltaf upp til agna og er í miklu uppáhaldi hjá fleirum en mér. Í þessari er hellings næring og aðeins minni sykur en í þeim mörgum. Bragðlausa kókosolían frá Rapunzel er frábær í bakstur eins og þessa köku. Ég nota einnig hafrahveiti á móti venjulegu hveiti en það gefur mjög gott bragð. Hafrarnir gera hana aðeins lausari í sér en hún er vel djúsí svo það kemur ekki að sök. Hún er svo toppuð með allra besta rjómaostakreminu og söxuðum ristuðum pekanhnetum.

Innihald:

4-5 meðalstórar rifnar gulrætur, um það bil tveir bollar án þess að þjappa

3 stór egg við stofuhita

1 bolli Rapadura hrásykur frá Rapunzel

2 tsk. vanilludropar

¼ tsk. vanillukorn frá Rapunzel

1 bolli hveiti

1 bolli hafrahveiti (Rapunzel hafrar malaðir í matvinnsluvél og svo mælt)

1 tsk. lyftiduft

½ tsk. matarsódi

¾ tsk. himalaya eða fínmalað sjávarsalt

1 msk. kanill

¼ bolli pekanhnetur, ristaðar og saxaðar smátt

1/3 bolli rúsínur

½ bolli bragðlaus kókosolía frá Rapunzel

¼ bolli súrmjólk

1 tsk. sítrónusafi

 

Aðferð:

  1. Byrjið á því að rífa gulræturnar og setjið til hliðar.
  2. Hitið ofn í 175°C blástur og klæðið 23x23cm form með bökunarpappír.
  3. Setjið sykurinn og 1 egg í skál og þeytið, bætið einu eggi við í einu þar til blandan er létt og ljós.
  4. Bætið við vanilludropum og vanillukornum og þeytið áfram í nokkrar sekúndur.
  5. Setjið hveiti, hafrahveiti, lyftiduft, matarsóda, salt og kanil saman við og hrærið í með sleif þar til deigið er nokkuð samfellt.
  6. Bætið þá við olíu, súrmjólk og sítrónusafa og hrærið með sleifinni.
  7. Setjið rifnar gulræturnar, rúsínur og saxaðar pekanhnetur saman við og hrærið í með sleif.
  8. Smyrjið deiginu í formið og bakið í 30 mín. Kælið alveg.
  9. Útbúið kremið og smyrjið yfir kökuna. Stráið söxuðum pekanhnetum yfir ef vill.

Færslan er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading