Það vill svo til að ég vann á Subway þegar ég var unglingur og í þá daga var hægt að fá kjötbollur í marinarasósu á bátinn sinn. Ekki löngu seinna voru þær ekki lengur í boði og síðan þá ekki hægt að kaupa kjötbollubát hérlendis að mér vitandi.

Ég viðurkenni að eftir þessa starfsreynslu hef ég ekki verið brjálaður Subway aðdáandi enda kannski borðað Subway fyrir lífstíð á þeim tíma. Dóttir mín gæti hins vegar lifað á þessum samlokum og hefur spurt nokkrum sinnum hvers vegna það sé ekki hægt að fá kjötbollur á bátinn sinn á Íslandi eins og annarsstaðar í heiminum. Án þess að geta svarað því hefur það verið á dagskrá lengi að gera svona bát frá grunni heima. Nú var komið að því og ég get bara fullyrt að þetta kom alveg sjúklega vel út og brauðin fullkomin þó ég segi sjálf frá. Þetta tekur smá tíma og er frábært helgarverkefni en útkoman er alveg þess virði. Ég sé líka alveg fyrir mér að það sé ekkert mál að stækka uppskriftina og frysta brauðin. Jafnvel væri hægt að gera það með kjötbollurnar líka.
Þessa verðið þið að prófa!

„Subway“ brauð

350ml vatn, um 37°C heitt
3 tsk þurrger
2 1/2 tsk sykur
1 1/2 tsk himalaya salt eða fínmalað sjávarsalt
3 msk olía
475g brauðhveiti+ meira ef deigið er of blautt.
1-2 tsk smjör

Aðferð:

  1. Setjið þurrefnin saman í hrærivélaskál og velgið vatnið í litlum potti eða í örbylgjuofni.
  2. Setjið krókinn á hrærivélina og hrærið aðeins upp í þurrefnunum áður en þið hellið vatninu rólega saman við á meðan hrærivélin vinnur á hægum hraða.
  3. Bætið olíunni út í strax á eftir vatninu.
  4. Leyfið vélinni að vinna rólega þar til deigið er komið saman. Það á að vera þannig að það klessist ekki við skálina en samt mjúkt og teygjanlegt.
  5. Ef deigið er of blautt setjið þá 1 msk. af hveiti út í í einu þar til deigið hættir að festast við skálina en er samt vel rakt. Ef hinsvegar deigið er of þurrt má bæta örlitlu vatni saman við. Hnoðið í hrærivélinni í 5-7 mín.
  6. Takið deigið úr skálinni og hnoðið það aðeins í höndunum, mótið kúlu og setjið aftur í skálina. Hefið á borði í 45 mín.
  7. Vigtið deigið og fáið út heildarþyngd. Deilið deiginu í 4 jafna hluta.
  8. Takið einn hluta af deiginu og rúllið út í ferhyrning sem er um 20x20cm. Rúllið því upp eins og ef þetta væri kanilsnúðadeig. Rúllið þá deiginu aðeins fram og aftur þar til saumurinn er alveg fastur og klípið deigið saman í endunum. Þá ætti deigrúllan að ná ca. 24cm.
  9. Endurtakið með hinar kúlurnar og gott að hafa þær sem jafnastar útlits. Þá er gott að horfa á fyrstu deigrúlluna og hafa hana til hliðsjónar.
  10. Leggið rúllurnar eða deiglengjurnar á bökunarplötuna. Mér finnst gott ef þær snertast þegar þær hefast og bakast en það er líka gott að hafa gott bil á milli, bæði betra! Ef þið setjið 4 rúllur á plötu munu þær snertast svo kannski er gott að miða við tvær og tvær á plötu ef þið viljið það síður.
  11. Stillið ofninn í 40°C undir og yfirhita. Úðið vel af vatni yfir deigið og inn í ofninn. Hefið í ofninum í 40 mín eða þar til brauðin eru orðin loftmikil og bústin.
  12. Takið brauðin út úr ofninum og hitið ofninn í 190°C undir og yfirhita. Setjið lítið form með vatni á ofngrind svo það myndist gufa í ofninum.
  13. Úðið brauðin með vatni og setjið þau í ofninn. Eftir 10 mín takið þið út vatnið og bakið áfram í 10-12 mín.
  14. Takið brauðin út og penslið örlitlu smjöri yfir þau. Færið þau á grind og leggið hreint viskastykki yfir þau. Leyfið þeim að kólna og njótið með því áleggi sem ykkur hugnast best.
  15. Athugasemd: Ég hef breytt uppskriftinni aðeins frá því hún var upphaflega sett inn. Mér finnst nú betra að nota brauðhveiti í stað venjulegs, breytti aðeins hlutföllum í uppskrifinni og hefunaraðferðinni. Þannig eru brauðin enn mýkri og betri en áður!

Kjötbollurnar

500g nautahakk (eða 50/50 nauta og grísa)
1 meðalstór laukur, smátt saxaður
3 hvítlauksgeirar
½ bolli brauðrasp
1 stórt egg
4 msk. rifinn parmesan ostur
1 msk. þurrkuð steinselja
2 tsk. fínmalað sjávarsalt eða himalaya salt
1 tsk. nýmalaður svartur pipar

Aðferð:

1. Setjið álpappír á bökunarplötu og setjið til hliðar. Hitið ofninn í 200°C blástur.

2. Blandið öllu saman í skál og hnoðið saman með höndunum þar til allt er vel blandað saman, varist þó að hnoða of lengi því þá verða kjötbollurnar eins og kjötfarsbollur og það viljum við alls ekki.

3. Mótið bollurnar með höndunum, ég vigtaði hverja um 50g.

4. Setjið bollurnar á bökunarplötuna og þegar þær eru allar komnar bakið þær í ofninum í 20 mín.

Kjötbollusósan (Marinara)

1 msk. ólífuolía
1 meðalstór laukur, smátt saxaður
3 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
160g tómatpúrra
2 dósir saxaðir tómatar
1 ½ msk. þurrkað oregano
1 msk. sjávarsalt
1 tsk. nýmalaður svartur pipar
2 tsk. sykur
Fersk basilíka, um 2 msk. söxuð

Aðferð:

1. Saxið laukinn og hvítlaukinn en blandið ekki saman.

2. Hitið olíuna á meðalhita í meðalstórum potti og setjið laukinn út í. Steikið í nokkrar mínútur þar til hann verður glær, varist að brenna hann.

3. Setjið hvítlaukinn og tómatpúrruna saman við og hrærið saman við laukinn.

4. Bætið niðursoðnu tómötunum saman við ásamt kryddinu en geymið basilíkuna.

5. Látið sósuna malla á lágum hita í 20 mín.

6. Setjið basilíkuna saman við og takið pottinn af hellunni.

Samsetning bátanna:

• 5 heimagerð Subway brauð
• Kjötbollusósa
• Kjötbollur
• Rifinn ostur eftir smekk
• Fersk basilíka
• Rifinn parmesan

1. Útbúið brauðin samkvæmt uppskrift.

2. Gerið sósuna og kjötbollurnar.

3. Hafið áfram kveikt á ofninum á 200°C.

4. Skerið brauðin eftir endilöngu í miðjunni og kjötbollurnar í tvennt

5. Setjið sósuna í raufarnar og raðið kjötbollunum ofan á sósuna.

6. Smyrjið sósu yfir kjötbollurnar og toppið með rifnum osti.

7. Bakið í ofninum þar til osturinn er farinn að gyllast.

8. Takið bátana út og raspið parmesan yfir. Toppið með ferskri basilíku ef vill.

 

Tilbúin brauð, hérna sjáið þið hvernig brauðin snertast, þannig verða hliðarnar mjúkar.
Brauðin eru stór og mjög svipuð Subway brauðunum að stærð.
Sósan er vel þykk en mér þykir hún best þannig. Ég sker síðan kjötbollurnar í tvennt áður en ég raða þeim með skurðinn niður í brauðin.
Hér er ég búin að smyrja sósu ofan á bollurnar og strá rifnum osti yfir. Magn ostsins fer algerlega eftir smekk.

Fallegir eru þeir! Verði ykkur að góðu!

 

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading