Hátíðlegt norskt jólabrauð með kardimommum & rúsínum

Þetta brauð kannast margir við sem hafa verið í Noregi í desember. Sætt gerbrauð með ilmandi kardimommum og rúsínum. Það er langbest þegar það er nýbakað og smurt með smjöri en margir Norðmenn njóta þess líka með brunost. Þetta er mjög einfalt brauð í gerð en tekur smá tíma auðvitað þar sem það þarf sinn tíma til að hefast. Það er fullkomið að bjóða upp á það í hádeginu um helgi, aðventubröns eða jafnvel á kaffihlaðborð.

Innihald:

125g smjör

5 dl nýmjólk

20g þurrger

900g hveiti + auka til að hnoða

2 tsk malaðar kardimommur

1/2 tsk salt

125g sykur

150g rúsínur

1 egg

Aðferð:

  1. Bræðið smjör í potti og bætið mjólk saman við. Þegar blandan er fingurvolg setjið þurrgerið saman við og bíðið í 5 mín eða þar til það er farið að freyða.
  2. Setjið hveiti, sykur, salt og kardimommur saman í hrærivélaskál og setjið krókinn á. Blandið þurrefnum saman lítillega.
  3. Setjið mjólkurblönduna rólega saman við þurrefnin og hnoðið á lágum hraða. Setjið rúsínurnar saman við og haldið áfram að hnoða þar til deigið er samfellt. Takið krókinn af, mótið aðeins deigið í kúlu og setjið plastfilmu yfir. Hefið í 40 mín.
  4. Smyrjið 2 jólakökuform miðlungsstór, skiptið deiginu í tvennt, mótið í hleif og setjið í formin. Setið rakt viskastykki yfir brauðin og hefið aftur í 40 mín. Mér finnst oft gott að taka seinni hefun í ofninum og stilla hann á 50°C og úða hann að innan með vatni til að mynda gufu.
  5. Takið brauðin út eftir hefun og hitið ofninn í 200°C og penslið brauðin með samanslegnu eggi. Bakið í 25 – 30 mín.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading