Piparkökur sem öll fjölskyldan elskar – klassísk uppskrift

Þessi uppskrift hefur fylgt mér í mörg ár en hefur aðeins tekið breytingum í gegnum tíðina. Á mínu heimili er þetta hin eina sanna piparkökuuppskrift og er bökuð í miklu magni á hverju ári. Þær eru dásamlega bragðgóðar enda ríflegt magn af kryddum í deiginu. Það er lítið mál að gera þær vegan eða mjólkurlausar og þá skiptið þið út smjörinu fyrir vegan smjör og mjólkinni út fyrir jurtamjólk.

Ef þið viljið síðan hafa piparkökurnar dekkri og stökkari eru þær bakaðar aðeins lengur en tíminn sem ég gef upp, fylgist bara vel með!

Ég mæli með því að setja þessa uppskrift í bookmarks, prenta hana út, vista á Pinterest eða skrifa niður í uppskriftabókina því þú munt ekki vilja neina aðra uppskrift hér eftir!

Innihald:

550g hveiti

250g sykur

180g smjör eða smjörlíki

2 tsk matarsódi

2 tsk negull

2 tsk engifer

1/2 tsk hvítur pipar

4 tsk kanill

1 dl sírópið í grænu dollunum

1 dl Nýmjólk eða Oatly ikaffe haframjólk

Aðferð:

  1. Bræðið smjörlíki og síróp saman í potti.
  2. Blandið öllum þurrefnum saman í hrærivélaskál og setjið krókinn á. Blandið saman þurrefnum og þegar sírópið og smjörlíkið er bráðið hellið því í hrærivélaskálina og vinnið á hægum hraða. Setjið haframjólkina út í og haldið áfram að hnoða þar til deigið er slétt og samfellt. Athugið að deigið er frekar lint en það á að vera þannig.
  3. Skafið deigið í aðra minni skál og setjið plastfilmu yfir. Geymið í kæli yfir nótt.
  4. Takið deigið úr kæli, fletjið þunnt út, skerið kökur út með piparkökuformum og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Passið að hafa þær ekki of klesstar saman.
  5. Bakið í 7-9 mín við 190°C blástur.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading