Bakaðar ostakökur minna mig alltaf á Bandaríkin enda er töluvert algengara að ostakökur þar séu af þeirri gerðinni. Innihaldið er töluvert frábrugðið þeim sem við þekkjum kannski betur sem eru þá gjarnan með matarlími og án eggja.
Bragðið er algerlega himneskt og áferðin silkimjúk. Súkkulaðikexið passar sérstaklega vel með fyllingunni og rjómakremið fullkomnar svo verkið.
Það er hins vegar smávegis kúnst að baka svona ostakökur en ef nokkur atriði eru höfð í huga er það lítið sem ekkert mál. Passa þarf að nota smelluform sem er síðan klætt vel með plastfilmu og álpappír svo ekkert vatn komist inn í formið en best er að baka þær í vatnsbaði. Smá vesen en fullkomlega þess virði. Þær geymast nefnilega líka svo vel í kæli og ekkert mál að frysta þær.
Innihald:
Kexbotn:
160g Nairns súkkulaðikex eða 3 pakkar
70g brætt smjör
50g sykur
¼ tsk. kanill
Fylling:
600g rjómaostur við stofuhita
230g sykur
20g maízena mjöl
2 stór egg við stofuhita
120ml rjómi
Dökkt súkkulaði ganache
50g saxað 70% súkkulaði, ég notaði frá Rapunzel
55g rjómi
Mjólkursúkkulaði ganache
50g saxað mjólkursúkkulaði, ég notaði frá Rapunzel
25g rjómi
Rjómakrem:
200ml rjómi
2 msk. flórsykur
1 tsk. vanilludropar
Aðferð:
- Takið fram 20cm lausbotna smelluform. Setjið bökunarpappír í botninn og á hliðarnar. Hitið ofninn í 175°C.
- Setjið kexið í matvinnsluvél og vinnið smátt. Bræðið smjörið. Blandið saman í skál ásamt sykri og kanil.
- Þjappið kexblöndunni í formið og upp á hálfar hliðarnar á forminu.
- Bakið kexbotninn í 7 mín. Takið hann þá út og kælið alveg.
- Fylling: Festið káið á hrærivélina. Setjið helminginn af rjómaostinum í skálina, helminginn af sykrinum og maízena mjölið. Hrærið á hægum hraða í ca. 3 mínútur. Bætið þá restinni af rjómaostinum saman við og leyfið vélinni að þeyta ostinum saman við á góðum hraða.
- Setjið restina af sykrinum saman við ásamt vanillunni og hrærið áfram.
- Bætið einu eggi saman við og hrærið á milli. Skafið niður hliðarnar á skálinni með sleikju og hrærið áfram. Setjið seinna eggið saman við og hrærið þar til blandan er slétt og samfelld.
- Setjið rjómann saman við og hrærið á rólegum hraða rétt svo þannig að hann blandist alveg saman við. Varist að ofþeyta ostablönduna.
- Útbúið súkkulaði ganache með því að saxa súkkulaðið og setja í sitthvora skálina. Hitið 75g af rjóma að suðu og setjið rétt magn af rjóma í skálarnar. Setjið disk yfir skálarnar og leyfið þeim að standa í 5 mín.
- Hrærið þá í ganache blöndunni þar til hún er orðin samfelld.
- Skiptið ostakökublöndunni í tvennt og hrærið dökka súkkulaðinu saman við annan helminginn og mjólkursúkkulaðinu við hinn.
- Takið formið með bakaða kexbotninum og hellið ostakökublöndunum til skiptis í formið. Byrjið á dökka og svo ljósa þar til þið hafið fyllt formið og klárað úr skálunum.
- Stingið borðhníf ofan í deigið og hreyfið hann í fram og til baka til að búa til marmara áferð.
- Setjið tvö lög af plastfilmu utan um formið og því næst tvö lög af álpappír. Setjið formið í eldfast mót og hellið sjóðandi vatni í formið þannig að yfirborðið nái hálfa leið upp að brún formsins.
- Bakið ostakökuna við 160°C í 1 klst og 45 mín. Eða þar til hún er orðin stíf við kantana en ennþá aðeins „jiggly“ í miðjunni.
- Takið kökuna út og kælið á borði í 2 tíma. Setjið hana þá í kæli í að minnsta kosti 6 tíma.
- Þegar bera á kökuna fram losið hringinn frá botninum og færið hana á kökudisk. Þeytið rjómann, flórsykurinn og vanilludropana saman og sprautið ofan á kökuna.
- Hitið beittan hníf undir heitri vatnsbunu og þurrkið vel af honum, skerið einu sinni niður og endurtakið svo skurðurinn verði hreinn. Berið fram með ferskum berjum og súkkulaðisósu.










Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

