Heimagerður hátíðarís með hvítu súkkulaði og piparkökum

Það er hefð á mörgum heimilum að útbúa ís fyrir jólin. Margir halda sig við sömu uppskriftina sem hefur gengið í erfðir kynslóðanna á milli en aðrir vilja prófa eitthvað nýtt á hverju ári. Ég tilheyri síðari hópnum en mér finnst ótrúlega gaman að prófa nýjar uppskriftir og hef sjaldnast það sama í jólamatinn.

Mér finnst samt mikilvægt að eftirrétturinn henti öllum á heimilinu og þessi ís er tilvalinn fyrir alla fjölskylduna. Hann er ótrúlega léttur í sér og piparkökurnar og hvítt súkkulaðið passar sérstaklega vel saman. Aðferðin við ísgerðina gerir það að verkum að hann er eins léttur í sér og raun ber vitni. Ég nota nefnilega eggjahvíturnar líka en ég stífþeyti þær og blanda þeim svo varlega saman við ísblönduna. Þennan verðið þið bara að prófa!

Innihald:

3 egg, aðskilin

50g sykur

100g hvítt súkkulaði

300g rjómi frá Gott í matinn

150g muldar piparkökur

Aðferð:

  1. Aðskilið eggin, setjið rauðurnar í skál ásamt sykri. Setið hvíturnar í aðra.
  2. Bræðið hvíta súkkulaðið í vatnsbaði. Takið af hitanum um leið og það er bráðið og látið mesta hitann rjúka úr. Hvítt súkkulaði bráðnar við vægan hita svo varist að hafa of heitt undir.
  3. Þeytið eggin og rauðurnar mjög vel eða þar til mjög létt og ljóst.
  4. Stífþeytið þá rjómann í einni skál og sþeytið hvíturnar í annarri þar til þær eru orðnar alveg stífar og hægt að hvolfa skálinni án þess að þær leki úr.
  5. Blandið hvíta súkkulaðinu við rauðurnar með sleikju. Blandið þá rjómanum saman við með sleikjunni.
  6. Blandið því næst þeyttu eggjahvítunum varlega saman við.
  7. Myljið piparkökurnar, ég setti þær í rennilásapoka og rúllaði yfir með kökukefli. Gott að hafa stærri bita með.
  8. Blandið piparkökunum saman við að síðustu með sleikjunni. Setjið ísinn í litlar skálar eða eitt stórt form og frystið í að minnsta kosti 12 tíma.

Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading