Þessar páskakanínur eru ekkert minna en stórkostlegar! Einföld uppskrift í skemmtilegri útfærslu fyrir krakka á öllum aldri. Snúðarnir sjálfir eru klassískir kanilsnúðar en aðferðin er aðeins öðruvísi þegar þeim er rúllað upp. Þeir eru svo skreyttir með litríku smjörkremi og kökuskrauti og koma ótrúlega skemmtilega út á páskaborðinu. Ég mæli alveg með því að leyfa krökkunum að skreyta kanínurnar sjálf þó ég hafi nú ekki gert það akkúrat hérna.
Innihald:
- 80g smjör
- 180ml nýmjólk
- 440g hveiti, skipt í 300g og 140g.
- 50g sykur
- 2 ¼ tsk. þurrger
- ½ tsk. salt
- 1 egg
Fylling:
- 60g smjör, brætt
- 150g púðursykur
- 2 msk. kanill
Smjörkrem:
- 150g mjúkt smjör
- 300g flórsykur
- 1 tsk. vanilludropar
- 2-3 msk. nýmjólk, stofuheit eða ylvolg
- Nokkur saltkorn
- Matarlitur, ég notaði bleikan, gulan og grænbláan
- Kökuskraut eftir smekk
Aðferð:
- Setjið smjörið í lítinn pott og bræðið við vægan hita. Hellið mjólkinni út í og hitið að 38°C.
- Takið fram hrærivélaskál og setjið 300g af hveitinu, sykurinn, gerið og saltið út í og hrærið aðeins í.
- Festið krókinn á og látið vélina rólega af stað, hellið smjörblöndunni varlega út í, skafið niður á milli ef þarf.
- Þegar deigið er komið vel saman setjið þá eggið út í og hrærið áfram.
- Byrjið þá að bæta restinni af hveitinu saman við, smá í einu þar til allt hveitið er komið saman við deigið.
- Látið vélina hnoða deigið í 2-3 mínútur og skafið það þá úr skálinni. Hnoðið aðeins á borði og setjið í skál sem hefur verið úðuð með olíuspreyi. Setjið plastfilmu yfir og leyfið deiginu að hefast á borði í 45-60 mín.
- Hafið tvær bökunarplötur tilbúnar og setjið bökunarpappír á þær.
- Stráið smávegis af hveiti á borð og fletjið deigið út í ferning.
- Blandið saman púðursykri og kanil í skál. Penslið bræddu smjörinu yfir deigið og stráið sykrinum yfir.
- Rúllið deiginu upp eins og þið mynduð venjulega gera með kanilsnúða og skerið lengjuna í 2-3 cm. bita.
- Losið endann frá og rekið hann aðeins upp, mótið eyru með því að beygja lengjuna tvisvar og klípa hana svo fasta við snúðinn (hausinn). Klípið eyrun saman efst og mótið kanínuna eins og ykkur finnst best (mynd fylgir).
- Setjið kanínurnar á plöturnar og leggið plastfilmu yfir. Látið hefast á borði í um 40 mín.
- Hitið ofninn á meðan í 180°C blástur.
- Bakið snúðakanínurnar í 15-20 mínútur.
- Á meðan kanínurnar kólna, útbúið þá smjörkremið:
- Setjið smjörið í skál og þeytið mjög vel, gott er að þeyta það í að minnsta kosti 5 mínútur eða þar til það er orðið nánast alveg hvítt.
- Sigtið þá flórsykurinn saman við og byrjið að hræra, setjið vanilludropa og 2 msk. af mjólkinni út í. Þeytið kremið í að minnsta kosti 5 mínútur eða þar til það verður mjög létt og hvítt. Bætið við smá mjólk ef þarf.
- Skiptið kreminu í þrjár skálar og litið kremið í hverri skál.
- Smyrjið kreminu á kalda snúðana og bætið við kökuskrauti ef þið viljið. Ég notaði svartar perlur í andlitið og neonlitað skraut í eyrun.










Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

