Þessi dásamlega jólalega terta mætti segja að væri tilbrigði við hina klassísku lagtertu. Botninn er hinsvegar léttur í sér en hefur þó þetta góða kryddbragð. Það eru skiptar skoðanir á því hvort sulta eigi að vera á lagtertum en hérna ákvað ég að nota hindberjasultuna góðu frá St. Dalfour og skreyta tertuna með ferskum hindberjum. Með klassíska smjörkreminu passar þetta allt ótrúlega vel saman og tertan jafnvel enn hátíðlegri fyrir vikið. Algerlega fullkomin í jólaboðin sem eru framundan!
Innihald:
4 stór egg við stofuhita
125g sykur
1 tsk. vanilludropar
70g hveiti
40g kartöflumjöl
3 msk. kakó
2 tsk. kanill
½ tsk. engifer
½ tsk. negull
1 krukka hindberjasulta frá St. Dalfour
Fersk hindber
Flórsykur til að dusta yfir
Aðferð:
- Hitið ofninn í 210°C blástur og setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Blandið þurrefnum saman í skál og setjið til hliðar.
- Setjið egg og sykur saman í hrærivélaskál og þeytið þar til blandan er orðin létt og ljós, þetta tekur alveg nokkrar mínútur.
- Sigtið 1/3 af þurrefnunum saman við eggjablönduna og blandið varlega saman við með sleikju. Eftir nokkur handtök setjið þá restina af þurrefnunum út í og hrærið áfram varlega með sleikjunni, passið að fara alveg ofan í botninn.
- Smyrjið jafnt í ferning á bökunarplötuna, ég læt deigið ekki ná alveg út í kantana en passa að deigið sé jafn þykkt.
- Bakið í um það bil 10 mínútur eða þar til botninn er farinn að brúnast og bakaður í gegn. Fylgist þó vel með, ofnar eru misjafnir og því gæti þurft að baka botninn skemur.
- Takið plötuna út úr ofninum og leggið hreint viskastykki strax yfir hann. Látið mesta hitann rjúka úr honum.
- Takið þá volgan botninn með bökunarpappírnum og leggið öfugt á borð á aðra örk af bökunarpappír og takið pappírinn af botninum. Rúllið honum upp með nýja pappírnum og leggið viskastykki yfir á meðan hann kólnar alveg.
- Útbúið smjörkremið samkvæmt uppskrift.
- Rúllið botninum varlega út. Smyrjið kreminu jafnt á en skiljið um 2cm rönd eftir í endann. Smyrjið sultunni þar yfir.
- Rúllið þá kökunni varlega upp og skerið endana af. Kælið.
- Dustið flórsykri yfir, raðið ferskum hindberjum á og njótið með góðum kaffibolla.
Smjörkrem:
75g smjörlíki
75g smjör
500g flórsykur
1 lítið egg
2 tsk. vanilludropar
Aðferð:
- Setjið smjör og smjörlíki saman í skál og þeytið vel.
- Bætið flórsykri, eggi og vanilludropum saman við og þeytið í allavega 10 mínútur eða þar til kremið er orðið mjög létt í sér og nánast hvítt að lit.





Unnið í samstarfi við ÍSAM.

