Brauðtertur eru frábærar á veisluborðið og margir hlakka hreinlega til þess að fara í veislu til að bragða á slíku góðgæti. Það þarf hins vegar ekkert að efna til veislu né að sækja þær til að hægt sé að njóta þessara lystisemda. Brauðtertur eru nefnilega hægt að græja á örskotsstundu og jafnvel í svona lítilli útgáfu eins og ég geri hér.
Rækjusalatið sem ég nota í terturnar er bara þetta klassíska góða. Það má auðvitað krydda það að vild, breyta og bæta. Jafnvel prófa með öðrum salötum. Majónesið sem ég notaði er mitt allra mesta uppáhald. Mér finnst skipta máli hvaða majónes er notað og hef prófað þau mörg en vel þetta alltaf eftir að ég prófaði það fyrst.
Innihald:
8 fínar samlokubrauðsneiðar
500g stórar rækjur
4 harðsoðin egg
4 kúfaðar msk. Heinz Seriously Good Mayonnaise + meira til að smyrja
Safi úr ½ sítrónu
Nýmalaður svartur pipar og sjávarsalt eftir smekk
1 msk. fersk steinselja
½ agúrka, skorin í þunnar sneiðar langsum
Ferskt dill
Gul paprika söxuð
Aðferð:
- Sjóðið eggin og kælið. Skerið skorpuna af brauðinu.
- Þýðið rækjurnar og pressið mesta vökvann úr þeim á eldhúspappír.
- Saxið rækjurnar smátt og setjið í skál. Skiljið smá eftir fyrir skraut.
- Setjið majónes, sítrónusafa og krydd saman við og hrærið.
- Takið eina brauðsneið og setjið á bretti eða disk. Setjið rækjusalat ofan á og leggið aðra brauðsneið ofan á. Þegar fjórða sneiðin hefur verið lögð á, smyrjið þá terturnar að utan með majónesinu.
- Skerið agúrku í sneiðar og raðið utan um brauðterturnar. Annars er hægt að skreyta þær með hverju sem ykkur dettur í hug. Ég notaði agúrkur, saxaðar rækjur, ferskt dill og saxaða gula papriku.







Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

