Fallegir sumardagar kalla hreinlega á góð fersk salöt og þetta kom alveg sérstaklega vel út.

Mig langaði sem sagt að prófa að raspa niður grillostinn frá MS og steikja á pönnu til að sjá hvernig það kæmi út og ég varð sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. Osturinn bráðnar ekki eins og flestir aðrir heldur verður stökkur. Ég gerði því alveg dásamlega bragðgott grískt kjúklingasalat og toppaði það með ostinum. Ég marineraði kjúklinginn í uppáhalds grísku marineringunni minni og setti síðan saman alls konar grænmeti sem ég tengi við Grikkland.

Þvílíkt lostæti!

Innihald:

Grillaður grískur kjúklingur:

3 kjúklingabringur

60ml ólífuolía

1 msk. rauðvínsedik

4 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir

Safi úr 1 sítrónu

1 msk. hunang

1 msk. oregano

1 tsk. sjávarsalt

½ tsk. nýmalaður svartur pipar

1 tsk. þurrkuð mynta

Aðferð:

Blandið öllu saman í skál. Setjið kjúklinginn í rennilásapoka og hellið marineringunni yfir. Látið kjúklinginn marinerast í að minnsta kosti 30 mín.

Hitið grillið vel og grillið bringurnar þar til þær eru eldaðar í gegn. Látið mesta hitann rjúka úr þeim og skerið svo í sneiðar.

Salatið:

1 stk. Grillostur frá Gott í matinn

Ferskt salat eftir smekk

Klettasalat

Kokkteiltómatar, magn eftir smekk

½ agúrka, skorin í bita

½ rauðlaukur, þunnt sneiddur

½ avocado í bitum

Svartar ólífur, magn eftir smekk

  1. Byrjið á því að rífa ostinn á grófa hlutanum á rifjárni. Hitið viðloðunarfría pönnu og setjið ostinn út á en ekki byrja strax að hreyfa hann til með spaða. Hann bráðnar aðeins en ekki eins og annar ostur. Byrjið að snúa ostinum við þegar hann fer að brúnast og þá er í lagi að hreyfa hann til og snúa eftir smekk.
  2. Ég notaði spaðann til þess að skera í sundur stærri bita. Steikið ostinn þar til hann er orðinn gullinbrúnn og stökkur. Setjið til hliðar.
  3. Skerið grænmetið og blandið salatinu í skál. Setjið kjúklinginn yfir og toppið með Grillostinum.

Unnið í samstarfi við MS – Gott í matinn.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading