Litríkt hrísgrjónasalat með dill baunabuffi og hvítlaukssósu

Þegar aðventan heilsar með öllu því sem henni fylgir finnst mér dásamlegt að geta gripið í eitthvað létt og næringarríkt. Þetta salat er einstaklega fljótlegt og einfalt og er þar að auki vegan. Baunabuffin frá Perfect Season geymast vel í frysti og engin þörf er á að affrysta þau áður. Ég skelli þeim meira að segja í airfryer-inn til þess að flýta enn meira fyrir mér. Salatið og sósan geymast vel í kæli og þetta er því einnig snilldar máltíð til að útbúa fyrirfram og taka með í nesti í vinnuna.

Innihald:

1 bolli brún hýðishrísgrjón, ég notaði frá Rapunzel

Hvítkál, skorið í strimla

Ferskt rauðkál, skorið í strimla

½ rauðlaukur, saxaður smátt

½ rauð paprika skorin smátt

2 gulrætur, skornar smátt

¼ bolli ristaðar kasjúhnetur

1 pakkning baunabuff með dilli frá Perfect Season

 

Hvítlaukssósa

1 dós sýrður hafrarjómi, ég notaði frá Oatly

2 hvítlauksrif marin,

Safi úr hálfri sítrónu

3 msk. ljóst tahini

1 tsk. hlynsíróp

1 msk. þurrkuð steinselja

Salt og pipar

 

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa sósuna. Setjið öll hráefni saman í skál og hrærið saman. Setjið inn í kæli á meðan salatið er útbúið.
  2. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum.
  3. Ristið kasjúhneturnar á þurri pönnu og setjið til hliðar.
  4. Skerið grænmetið og setjið til hliðar á meðan hrísgrjónin sjóða.
  5. Hitið buffin í airfryer eða steikið á pönnu. Ég tek þau beint úr frysti og set þau frosin í pottinn eða á pönnuna. Ég hitaði buffin á 200°C í 6-7 mín á airfryernum.
  6. Þegar hrísgrjónin eru tilbúin eru þau sett í skál og grænmetinu og kasjúhnetum blandað saman við. Berið strax fram með því að setja salat á disk og buffin ofan á. Setjið sósu á eftir smekk.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading