Ljúffengur jólaís með marsípani, kokkteilberjum og súkkulaði

Það er einhver dásamleg nostalgía fólgin í marsípani og kokkteilberjum. Þessi jólin er ég búin að fara í marga hringi með eftirréttinn á aðfangadagskvöld. Alla klassísku og góðu eftirréttina, allra handa ísa og ég veit ekki hvað. En nú er ég með hamborgarhrygg en hann hef ég ekki haft á jólum í mörg ár. Það kallar á eitthvað álíka klassískt og því varð þessi ís til. Minnir á gamla tíma, rautt flauel, músastiga og marglituð jólaljós.

Innihald:

4 stór egg, aðskilin

70g sykur

100g Ren rå marsípan

1 krukka rauð kokkteilber

100g saxað súkkulaði

500ml rjómi

3 msk vökvi frá kokkteilberjunum

Aðferð:

  1. Þeytið eggjarauður og sykur í einni skál.
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar í annarri skál.
  3. Skerið marsípanið og kokkteilberin í litla bita. Skiljið eftir 4-6 ber til skrauts.
  4. Stífþeytið rjómann.
  5. Blandið rjómanum saman við eggjablönduna með sleikju. Setjið marsípan, kokkteilber, súkkulaði og vökvann frá berjunum út í og blandið varlega með sleikjunni.
  6. Að síðustu setjið þið eggjahvíturnar út í og blandið saman við með sleikju. Passið að gera það varlega svo þeytingin fari ekki úr hvítunum.
  7. Setjið í 2 form að eigin vali. Frystið að minnsta kosti yfir nótt.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading