Ég hef verið þekkt í gegnum tíðina fyrir að vera mikill sítrónuaðdáandi og þessar eru algerlega geggjaðar! Fyrir utan það náttúrulega hvað þær eru sjúklega sætar þá eru þær sko sítrónukökur í gegn. Botninn sjálfur er dúnmjúkur með góðu sítrónubragði en til þess að toppa það er bæði lemon curd og sítrónusmjörkrem með. Ótrúlega góðar og passa sérstaklega vel á páskaborðið. Ef þú átt að koma með eitthvað sætt í fjölskylduboð um páskana þá er þetta alveg góð hugmynd!
Innihald:
- 150g sykur
- 60ml jurtaolía
- 2 egg
- 1 tsk. sítrónudropar
- 1 tsk. vanilludropar
- 180g hveiti
- ¾ tsk. lyftiduft
- ½ tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 180ml mjólk
- Safi úr hálfri sítrónu
- Rifinn börkur af einni sítrónu
- Sítrónusmjör – lemon curd, magn eftir smekk
- Sítrónusmjörkrem – uppskrift fylgir
- 24 stk. Sykuraugu frá Dr. Oetker
- Appelsínugult „candy melts“ eða bútur af gulrót t.d.
Aðferð:
- Hitið ofninn í 175°C. Setjið 12 bollakökuform í bollakökumót.
- Setjið sykur og olíu saman í hrærivélaskál og blandið vel saman.
- Setjið því næst 1 egg út í og þeytið vel. Skafið niður á milli. Bætið hinu egginu út í og þeytið þar til létt og ljóst. Bætið sítrónu- og vanilludropum út í og þeytið aðeins áfram.
- Setjið sítrónusafann út í mjólkina og bíðið í smástund.
- Sigtið hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt saman við eggjablönduna og setjið helminginn af mjólkinni saman við. Hrærið í nokkrar sekúndur.
- Bætið restinni af mjólkinni saman við ásamt sítrónuberki, hrærið aftur bara í nokkrar sekúndur. Kökurnar verða nefnilega of seigar ef deigið er hrært of mikið.
- Skiptið deiginu á milli formanna og bakið í 25 mín.
- Takið kökurnar út og kælið á grind.
- Þegar kökurnar eru orðnar alveg kaldar er hola gerð í þær með því að taka kremstút eða annað lítið kringlótt áhald og stinga út gat í hverja köku.
- Um það bil 1 teskeið af sítrónusmjöri er sett ofan í gatið og lokað aftur með því sem tekið var úr kökunni, mér fannst gott að taka aðeins af því svo tappinn passi.
- Ef vill má gera litla fætur úr appelsínugulu „candymelts“ súkkulaði. Ég bræddi nokkur stykki og notaði tannstöngul til þess að „teikna“ fætur á kökuna áður en ég sprautaði kreminu á. Ég gerði líka 12 litla þríhyrninga á smjörpappír sem ég notaði fyrir gott en það er alveg hægt að skera smá bút af gulrótarsneið og nota í staðinn.
- Setjið kringlóttan stút í sprautupoka og sprautið kreminu ofan á kökurnar. Ég gerði fyrst eina stóra doppu og aðra litla þar ofan á. Þá setti ég augun og gott á hvern unga og þá eru þær tilbúnar!
Sítrónusmjörkrem
- 140g mjúkt smjör
- 2 pokar Butter Cream base frá Dr. Oetker
- 4-5 msk. sítrónusmjör (lemon curd)
- 1 tsk. rifinn sítrónubörkur
- 2 tsk. vanilludropar
- Gulur matarlitur frá Dr. Oetker
Aðferð:
- Setjið smjörið í skál og þeytið vel.
- Bætið Butter cream grunninum saman við ásamt sítrónusmjöri og vanilludropum og þeytið vel.
- Bætið við gulum matarlit, magn eftir smekk. Þeytið áfram mjög vel. Ef ykkur finnst kremið vera of stíft má bæta við meiru af sítrónusmjöri.










Unnið í samstarfi við ÍSAM.


DÚLLUR!!