Nú þegar vorið er komið notum við fjölskyldan hvert tækifæri til þess að grilla. Það er auðvitað klassískt að bera fram kartöflusalat með hinum ýmsu grillréttum en þetta toppar þau líklega flest. Í dágóðan tíma hafa kartöflusalöt með klessukartöflum hringsólað á samfélagsmiðlum en þetta er að mínu mati það besta sem ég hef smakkað. Ég mæli með því að bera það fram með grilluðum kjúklingi, lambakjöti og fiski. Og þegar páskarnir eru á næsta leyti liggur auðvitað beinast við að hafa það með páskasteikinni.
Innihald:
- ½ kg litlar kartöflur
- 3 msk. ólífuolía
- 1 dós Ora maískorn
- ½ avocado, skorið í bita
- 3 vorlaukar, hvíti hlutinn
- ½ rauðlaukur, miðlungsstór
- 50g ítölsk parmaskinka
- 1 msk. ferskt dill, saxað
- 1 msk. ferskt kóríander, saxað (má sleppa)
- 40g majónes
- 40g sýrður rjómi
- 1 tsk. ferskur sítrónusafi
- ¼ tsk. cayenne pipar
- ¼ tsk. hvítlauksduft
- Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Sjóðið kartöflurnar þar til þær eru soðnar í gegn.
- Hitið ofninn í 210°C blástur.
- Hellið vatninu af kartöflunum og setjið þær á ofnplötu sem klædd er með bökunarpappír. Notið glas eða eitthvað áhald til þess að kremja niður kartöflurnar. Penslið þær með ólífuolíu og stráið smávegis af sjávarsalti yfir.
- Bakið kartöflurnar í 30 mín í ofninum, snúið þeim við og penslið aftur með olíu þegar tíminn er hálfnaður.
- Setjið parmaskinkuna á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Bakið hana í ofninum síðustu 7 mínúturnar af kartöflutímanum. Fylgist vel með þar sem sneiðarnar eru svo þunnar.
- Takið kartöflurnar og skinkuna úr ofninum og kælið.
- Á meðan kartöflurnar kólna setjið þá majónes og sýrðan rjóma í miðlungsstóra skál. Bætið við sítrónusafa og kryddum og hrærið.
- Skerið avocado í bita og vorlauk og rauðlauk smátt. Hellið maískorni í sigti og látið vatnið renna af.
- Setjið grænmetið og maísinn saman við sósuna.
- Skerið kartöflurnar í bita þegar þær hafa kólnað að mestu og saxið parmaskinkuna. Setjið út í skálina og blandið saman. Best er að láta salatið taka sig í smá stund í kæli áður en það er borið fram.









Unnið í samstarfi við Ora.

