– Suksess kake!
Þessi kaka er líklega með þeim einföldustu en þær eru oftast bestar. Uppskriftin kemur frá Noregi en þar hefur hún verið með þeim vinsælli í áratugi og er tertan bökuð við öll tilefni, allt árið um kring. Hvort sem tilefnið er fínna á borð við brúðkaup og fermingar eða bara til að hafa með sunnudagskaffinu. Botninn minnir á makkarónubotn og gula kremið passar fullkomlega við möndlurnar og er alls ekki of sætt. Og þar sem ekkert hveiti er í kökunni hentar hún vel fyrir þau sem þurfa að sneiða hjá glúteni en vilja samt gera vel við sig með góðri tertusneið.
Innihald:
- 200g möndlur með hýði, frá Rapunzel
- 165g flórsykur
- 5 eggjahvítur
- ¼ tsk. salt
Gult krem
- 5 eggjarauður
- 115 ml. Rjómi
- 100g sykur
- 130g smjör, mjúkt
- 40g mjólkursúkkulaði frá Rapunzel
Aðferð:
- Hitið ofninn í 160°C blástur. Klæðið 2 stk. 20cm smelluform með bökunarpappír og setjið til hliðar.
- Setjið möndlurnar í matvinnsluvél eða blandara og myljið smátt.
- Blandið flórsykri saman við möndlumjölið og setjið til hliðar.
- Setjið eggjahvíturnar og salt í hrærivélaskál með þeytara. Þeytið hvíturnar þar til þær eru orðnar nærri því stífþeyttar en þó ekki alveg í topp.
- Blandið möndlunum varlega saman við með sleikju. Skiptið deiginu á milli formanna og bakið í ca. 35 mín. Kælið botnana alveg áður en kakan er sett saman.
- Á meðan er kremið útbúið. Setjið eggjarauðurnar, rjómann og sykurinn í pott og bræðið saman við lágan hita, hrærið stöðugt í svo það brenni ekki við. Um leið og blandan byrjar að sjóða, takið þá pottinn af hellunni. Kælið alveg.
- Setjið eggjablönduna í skál og takið til handþeytara, en mér finnst betra að nota handþeytara við gerð kremsins en hrærivél.
- Byrjið að þeyta eggjablönduna og bætið við ca. matskeið af smjöri út í í einu og þeytið vel á milli. Kremið er tilbúið þegar allt smjörið er komið út í og glansandi krem hefur myndast.
- Samsetning: Setjið einn botn á kökudisk og smyrjið rúmlega helmingnum af kreminu á. Setjið hinn botninn ofan á og smyrjið restinni af kreminu yfir. Þetta er ríflegt magn af kremi, ef þið viljið ekki nota allt kremið kemur það alls ekki að sök.
- Takið mjólkursúkkulaðið og raspið yfir kökuna eða notið grænmetisflysjara og skafið súkkulaðið þannig að fallegt kurl myndast.






Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

