Það eru margir sem nýta páskafríið til þess að slaka á í sumarbústað, bjóða jafnvel sínum nánustu í bröns og njóta þannig frídaganna með góðum mat í enn betri félagsskap. Það tekur enga stund að útbúa fallegt smurbrauð með síldinni frá Ora og þá er upplagt að nota karrýsíldina. Hún hentar sérlega vel ofan á danskt rúgbrauð til dæmis og svo er hægt að nota hvað sem hugurinn girnist með henni. Hér nota ég annars vegar kaldar soðnar kartöflur, kapers, salat og ferska steinselju og hins vegar soðið egg, ferskt dill og rauðlauk. Það má auðvitað nota hvað sem er og krydda með hverju sem er, bara að láta hugmyndaflugið ráða!

Innihald:

  • 1 krukka Karrýsíld frá Ora
  • 4-6 sneiðar danskt rúgbrauð eða maltbrauð
  • 3 soðin egg
  • Rauðlaukur, skorinn í sneiðar
  • Salatblöð
  • 3 kaldar kartöflur, skornar í sneiðar
  • 1 msk. kapers
  • Ferskt dill
  • Fersk steinselja
  • Sjávarsalt ef vill

Aðferð:

  1. Byrjið á því að sjóða eggin. Mér finnst best að sjóða þau þannig að þau verði ekki alveg harðsoðin. Ég legg þau í kalt vatn með smá salti og læt suðuna koma upp. Þegar vatnið byrjar að sjóða stilli ég tímann á 7 mínútur. Þá tek ég pottinn af og læt strax kalt vatn buna á þau til að stöðva suðuna. Skerið eggin í eggjaskera.
  2. Skerið sneiðarnar í tvennt. Raðið ca. 3 síldarbitum með sósu ofan á brauðsneiðarnar með egginu, en hinar sem ég fyrst salatblað og svo síld.
  3. Raðið þá kartöflum, eggjasneiðum og rauðlauk á sneiðarnar. Skolið kapers og raðið því á og skreytið með fersku dilli og steinselju.

Unnið í samstarfi við ORA.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading