Vegan & lífræn uppskrift
Þessi frábæra uppskrift er í senn fáránlega einföld, sparileg og að auki vegan. Það mun ekki nokkur sála átta sig á því hvað það tók stuttan tíma að gera þennan eftirrétt. Agar agar duftið er ótrúlega skemmtileg hráefni sem gaman er að leika sér með í stað matarlíms. Það þarf mjög lítið af því en ólíkt matarlími þarf það að sjóða með vökvanum í smá stund. Nirwana súkkulaðið frá Rapunzel er fullkomið í þennan rétt þar sem það er ljósara en margt vegan súkkulaði og fyllingin er algjörlega himnesk.
Innihald:
400ml Oatly imat hafra matreiðslurjómi
2 stk Nirwana vegan súkkulaði með pralínfyllingu frá Rapunzel
½ tsk Agar agar duft
30g cristallino hrásykur
¼ tsk vanilluduft
Sjávarsalt á hnífsoddi
Oatly visp hafrarjómi, magn eftir smekk
Fersk hindber eða önnur ber sem ykkur hugnast
Aðferð:
Setjið öll hráefni í pott og bræðið saman við vægan hita, leyfið suðunni að koma upp og látið malla við suðupunkt í 5 mín.
Sigtið blönduna svo það séu örugglega engir kekkir. Hellið í falleg glös og kælið. Skreytið með þeyttum hafrarjóma og ferskum hindberjum.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan

