Mýksta og besta focaccia sem til er! Stökkt að utan og lungamjúkt að innan með bragðmiklu pestói í aðalhlutverki. Hægt er að nota hvaða álegg sem er!
Focaccia með rauðu pestói, ólífum og kokkteiltómötum

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Mýksta og besta focaccia sem til er! Stökkt að utan og lungamjúkt að innan með bragðmiklu pestói í aðalhlutverki. Hægt er að nota hvaða álegg sem er!

Þurfum við ekki alltaf fleiri kjúklingauppskriftir í líf okkar? Mér finnst það allavega. Þessi kjúklingaréttur er ótrúlega einfaldur í framkvæmd en bragðmikill og djúsí. Úrbeinuð og meyr kjúklingalæri eru fyrst brúnuð á pönnu og fá síðan að malla í rjómalagaðri …

Ekta ítalskt hægeldað bolognese með ljúffengu spaghettíi og rifnum parmesan.

Þessi pastaréttur er í miklu uppáhaldi hjá mér enda er hann dásamlega bragðgóður, einfaldur og einstaklega fljótlegur. Smakkast eins og besti pastaréttur á veitingastað og fallegur að bera fram. Það er tilvalið að skella í þennan fyrir saumaklúbbinn eða bera …

Bragðgóður og einfaldur vegan baunaréttur með smjörbaunum, hvítlauk, svörtum ólífum og ferskri basilíku. Dásamlegur með nýbökuðu brauði.

Þessar kjötbollur eru alveg ótrúlega þægilegar, það tekur enga stund að útbúa þær og þær eru síðan bakaðar í ofni í stað þess að þurfa að standa við pönnuna og steikja þær. Það sem gerir þær alveg ómótstæðilegar eru kryddin …

Focaccia samlokur í allskonar útgáfum hafa farið eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum síðastliðin misseri. Það skal engan undra því þvílíkt lostæti sem slíkar samlokur eru. Persónulega finnst mér best að gera sem mest frá grunni í eldamennskunni og …

Þessi réttur er algjörlega ómótstæðilegur og fullkominn fyrir alla sanna aðdáendur ítalskrar matargerðar. Að dúlla við þennan með góða tónlist og vínglas á hliðarlínunni er svo mikið helgardekur. Hann passar líka sérlega vel í matarboð og jafnvel saumaklúbbinn. Ég nota …