Eftirréttir eða kökur sem innihalda bæði kaffi og súkkulaði er með því besta sem til er. Ef þið bætið svo mascarpone og rjóma í jöfnuna verður til eitthvað stórkostlegt sem enginn vegur er að standast. Þessar brownies eru einmitt þannig. Dökkur og þéttur brownies botn sem síðan er smurður þykku lagi af stórkostlegu mascarpone kremi og toppað með kakói. Kremið kemur með tiramisú bragðið á sama tíma og það vinnur á móti súkkulaðinu í botninum svo útkoman verður fullkomið jafnvægi.

Innihald:

  • 115g smjör
  • 200g 70% súkkulaði, saxað
  • 3 egg
  • 70g púðursykur
  • 100g sykur
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 30g kakó
  • 60g hveiti
  • ½ tsk. sjávarsalt
  • 1 msk. skyndikaffiduft, mulið

Mascarpone krem:

  • 250g mascarpone frá Gott í matinn, við stofuhita
  • 250 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 60g flórsykur
  • ¼ tsk. sjávarsalt
  • 1 msk. vanilludropar
  • 2 msk. kahlua líkjör, má sleppa og nota kaffi í staðinn
  • 2-3 msk. kakóduft til að dusta yfir

Aðferð:

  1. Byrjið á því að saxa súkkulaðið og setja það til hliðar. Hitið ofninn í 170°C með blæstri.
  2. Klæðið ferkantað form, 20x20cm með bökunarpappír.
  3. Setjið smjörið í pott og bræðið við vægan hita. Þegar það er alveg bráðið, slökkvið þá undir pottinum og bætið súkkulaðinu út í. Hrærið aðeins saman og látið standa.
  4. Setjið egg, púðursykur, sykur og vanilludropa saman í meðalstóra skál og þeytið saman þar til blandan er létt og ljós. Þetta gæti tekið um 5 mínútur.
  5. Blandið þá súkkulaðiblöndunni rólega saman við með sleikjunni með því að hella henni í mjórri bunu úr pottinum og skafa upp úr botninum og upp.
  6. Þegar allt súkkulaðismjörið er komið saman við sigtið þá kakó, hveiti, salt og mulið skyndikaffiduft saman við og blandið rólega saman við með sleikjunni.
  7. Smyrjið deiginu í formið og bakið í ca. 20-22 mín.
  8. Þegar brownies botninn er tilbúinn verður að kæla hann alveg áður en mascarpone kremið er sett yfir.
  9. Útbúið mascarpone kremið:
  10. Byrjið á því að setja mascarpone ostinn í skál og þeyta vel með handþeytara.
  11. Setjið rjómann í aðra skál og þeytið þar til hann byrjar að stífna en ekki þannig að hann sé stífþeyttur.
  12. Setjið þá ostinn saman við rjómann ásamt flórsykri, sjávarsalti, vanilludropum og líkjör.
  13. Þeytið vel þar til blandan er alveg kekkjalaus og líkist þykku kremi.
  14. Losið brownies botninn úr forminu en setjið hann svo aftur í formið á pappírnum.
  15. Smyrjið mascarpone kreminu yfir kaldan brownies botninn á meðan kakan er enn í forminu.
  16. Kælið.
  17. Dustið kakódufti yfir kremið, takið kökuna þá úr forminu og skerið í bita.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading