Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Bragðmikil, mjúk en þétt vegan formkaka, stútfull af góðri næringu. Með stökkum múslítoppi sem gefur ólýsanlega gott kröns!

Einföld og þægileg glútenlaus súkkulaðiterta sem tekur enga stund að græja! Silkimjúkt ekta súkkulaðikremið og fersk jarðarber færa hana upp á æðra stig.

Ljúffeng & sumarleg máltíð sem tekur einungis 15 mínútur að græja! Forsoðin rifin fara beint á grillið, maísinn með og franskarnar hitaðar á meðan.

Ef þú ert aðdáandi Subway samloka þá er þessi uppskrift eitthvað fyrir þig! Heimagerð Subway brauð sem eru ótrúlega mjúk og djúsí, fyllt með úrvali af Kjarnafæðis áleggi, fersku grænmeti og sósu. Erum við ekki alltaf að reyna að elda …

Grillaðar nautalundir eru fullkomnar ef þú vilt gera virkilega vel við þig í mat. Þessar steikur eru maríneraðar í stórkostlegum trufflu og black garlic kryddlegi og svo grillaðar á blússheitu grilli. Með þeim bar ég fram bakaðar kartöflur með trufflusmjöri og stórkostlega grænpiparsósu sem allir munu biðja uppskriftina að!

Einfaldur, ferskur og fljótlegur eftirréttur sem allir geta töfrað fram! Nýi hvítsúkkulaði rjómaosturinn frá MS er fullkominn með stökku kexi og ferskum berjum.

Hvað ef það væri hægt að fá bragðið af djúsí ostborgara en samt væri það salat? Jú, það er bara hægt og ekki nóg með það, það er fáránlega auðvelt að útbúa það og mjög fljótlegt. Sósan er ekta smassborgara …

Allra mýkstu og bestu snúðar sem þú getur fengið! Með stórkostlegri kaffi & súkkulaðifyllingu sem enginn fær staðist, ekki einu sinni þau sem drekka ekki kaffi!