Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Litríkur og bragðgóður grænmetisréttur sem færir okkur smá yl í hjartað. Með nokkrum góðum kryddum, grænmeti og baunum verður til veisla!

Þegar þú vilt gera svolítið vel við þig og þína er þetta einstaklega meyra og bragðgóða lambafille fullkomin máltíð. Hunangsbakaða grænmetið passar svo sérlega vel með.

Ef þig langar í góðan heimilismat en ert ekki alveg í stuði til þess að gera allt frá grunni þá eru sænsku kjötbollurnar frá Kjarnafæði algerlega fullkomnar. Vissulega væri hægt að fara alla leið og grípa með sér tilbúna sósu …

Einfaldur, fljótlegur og næringarríkur indverskur vegan pönnuréttur sem öll fjölskyldan elskar! Að auki er hann ódýr og ótrúlega bragðgóður.

Sígildur og notalegur kvöldmatur sem stendur ávallt fyrir sínu. Tilbúnu kótiletturnar einfalda eldamennskuna til muna og meðlætið sér um sig sjálft!

Þessi einföldu en algerlega stórkostlegu súkkulaðibrot eru fullkomin þegar þig langar í eitthvað fallegt, fljótlegt og bragðgott. Ég bræddi dökkt súkkulaði og smurði á bökunarpappír og toppaði með þurrkuðum berjum sem gefa sætt en örlítið súrt bragð, stökkum ristuðum möndlum …

Matar- og bragðmikil súpa með mexíkósum blæ sem allir í fjölskyldunni elska! Fullkomin fyrir köldu haustkvöldin.

Fljótlegur og þægilegur kvöldmatur sem allir í fjölskyldunni halda upp á. Hægt að nýta allskonar afganga og allir setja saman sína skál, engin matarsóun!