Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Loksins, loksins er komin uppskrift að stórkostlegum, almennilegum glútenlausum flatkökum sem líkjast okkar allra bestu íslensku flatkökum sem við elskum öll! Mjúkar, bragðgóðar og fullkomnar hvort sem er þær eru smurðar einungis með smjöri, osti eða hangikjöti.

Einfaldur og þægilegur indverskur kjúklingaréttur sem hentar vel hvort sem er í miðri viku eða í helgarmatinn.

Það nær ekki nokkurri átt hvað þessar kexsamlokur eru ljúffengar! Þær eru glútenlausar, ótrúlega einfaldar og geymast vel í kæli. Ég nota glútenlausa Nairn‘s súkkulaðikexið sem grunn, legg tvær kexkökur saman með silkimjúku karamellukremi, dýfi þeim í brætt mjólkursúkkulaði og …

– Glútenlaus uppskrift! Það nær ekki nokkurri átt hvað þessar kexsamlokur eru ljúffengar! Þær eru glútenlausar, ótrúlega einfaldar og geymast vel í kæli. Ég nota glútenlausa Nairn‘s súkkulaðikexið sem grunn, legg tvær kexkökur saman með silkimjúku karamellukremi, dýfi þeim í …

Þetta eru svona ekta múffur sem gott er að bjóða upp á í kaffitímanum eftir skóla eða á köldum helgardegi með rjúkandi heitum kaffibolla. Það tekur enga stund að henda í deigið og það þarf ekkert að vesenast með neitt …

Þessar múffur eru í miklu uppáhaldi hjá mér, ekki síst fyrir þær sakir hvað þær eru einfaldar. Ekta svona bakarís- og kaffihúsa múffur en bara svo miklu betri svona heimabakaðar. Þær eru pakkaðar af súkkulaði og haldast lengi mjúkar.

Eftirréttir eða kökur sem innihalda bæði kaffi og súkkulaði er með því besta sem til er. Ef þið bætið svo mascarpone og rjóma í jöfnuna verður til eitthvað stórkostlegt sem enginn vegur er að standast. Þessar brownies eru einmitt þannig. …

Bókhveitigrautur er bragðgóður og næringarríkur morgunverður sem hentar sérstaklega vel fyrir þau sem þurfa að sleppa glúteni og höfrum. Toppaður með ferskum berjum, hnetusmjöri og hlynsírópi sem gerir hann ómótstæðilegan.