– vegan réttur fyrir 4
Ef þig vantar uppskrift að bragðgóðum kjötlausum kvöldmat sem er samt einfaldur og ódýr þá er þetta fullkomin máltíð. Ég uppgötvaði nýlega „sojakjöt“ en það er unnið úr sojabaunum og inniheldur ekkert annað. Það er alveg bragðlaust og því er hægt að marínera það í hverju sem er og þannig stjórna alveg bragðinu. Áferðin er ekki ólík kjúkling en það besta er að það er mjög næringarríkt og stútfullt af próteini.
Aftur að uppskriftinni! Ég kryddlagði sojakjötið upp úr tandoori mauki og hafrajógúrti sem ég átti til, græjaði einfalda jógúrtsósu með ásamt hýðishrísgrjónum. Þetta var alveg ótrúlega gott og fyrirhöfnin var mjög lítil. Þessa verðið þið bara að prófa!
Innihald:
- 1 stk. 125gr. poki Sojakjöt frá Rapunzel
- Vatn
- 100g hafrajógúrt, ég notaði frá Oatly
- 100g tandoori kryddmauk, ég notaði frá Patak‘s
- 1 tsk. salt og nýmalaður svartur pipar
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 tsk. kókosolía
- 1 dós kókosmjólk frá Rapunzel
- 1 msk. tómatpúrra, frá Rapunzel
- ½ tsk. hvítlauksduft
- 1 tsk. cumin
- 1 tsk. kóríanderduft
- ½ tsk. garam masala
- Meira salt og pipar ef þarf
- 100g kasjúhnetur
- Hýðishrísgrjón
Einföld jógúrtsósa
- 200g hreint vegan jógúrt, tegundin skiptir ekki öllu máli
- Söxuð agúrka, magn eftir smekk
- 1 hvítlauksgeiri, marinn
- ½ tsk. cumin
- Salt og pipar
- Saxið gúrkuna og blandið öllu saman í skál. Leyfið sósunni að taka sig í kæli á meðan maturinn mallar.
Aðferð:
- Setjið þurrt sojakjötið í skál og hellið ½.l af sjóðandi vatni yfir. Leyfið þessu að standa í 15 mín.
- Hellið sojakjötinu í sigti og pressið mesta vatnið úr og setjið aftur í skálina.
- Bætið jógúrt og kryddmauki út í og hrærið öllu saman og marínerið í 30 mín.
- Á meðan sojakjötið marínerast er gott að nýta tímann og setja hrísgrjónin yfir. Athugið að það tekur lengri tíma að sjóða þau en hvít hrísgrjón.
- Útbúið jógúrtsósu og ristið hneturnar með því að setja þær á þurra pönnu og rista þær á miðlungs hita þar til þær eru orðnar vel ristaðar.
- Skerið laukinn í tvennt og svo í þunnar sneiðar. Saxið hvítlaukinn smátt.
- Hitið kókosolíu á pönnu og steikið laukinn við miðlungshita eða þar til hann er orðinn glær og aðeins farinn að brúnast. Setjið þá hvítlaukinn saman við og steikið áfram í hálfa mínútu.
- Setjið þá marínerað sojakjötið út á pönnuna og steikið með lauknum. Þegar maríneringin er farin að gufa upp, bætið þá kókosmjólkinni og tómatpúrrunni saman við.
- Bætið við kryddum og leyfið þessu að malla í 10 mín við miðlungs til lágan hita.
- Smakkið til með kryddum, salti og pipar.
- Berið fram með hrísgrjónum, ristuðum kasjúhnetum og jógúrtsósu.









Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

