Eitt það skemmtilegasta sem við fjölskyldan gerum saman á aðventunni er að skreyta piparkökuhús. Það getur samt verið svolítið vesen að gera húsið frá grunni og setja það síðan saman með bræddum sykri (ég hef fengið ófá brunasárin við þær aðfarir!). Piparkökuhúsið frá Dr. Oetker reddar þessu öllu! Húsið sjálft og sælgætið kemur saman í pakka en kaupa þarf glassúrinn og piparkökulímið sér ef þið eruð eins og ég og leggið ekki í brædda sykurinn. Ég bætti síðan við ótrúlega fallegum silfurkúlum en það er auðvitað til allskonar skemmtilegt kökuskraut og glassúr frá Dr. Oetker sem líka er hægt að nota. Gleðilega aðventu!

Innihald:

  • 1 pk. Piparkökuhús frá Dr. Oetker
  • 1 túpa Dr. Oetker piparkökulím
  • 1 túpa Dr. Oetker hvítur glassúr í túpu
  • Silfurkúlur, kökuskraut frá Dr. Oetker

Aðferð:

  1. Byrjið á því að taka fram bretti eða disk til þess að setja húsið á.
  2. Ég mæli með því að skreyta hliðarnar á húsinu áður en það er sett saman. Mér finnst einnig koma betur út að líma sælgætið á húsið með piparkökulíminu frekar en glassúr.
  3. Takið allt úr pakkningunum og raðið á borð. Setjið heitt vatn í glas og látið túpuna með piparkökulíminu þar ofan í. Leyfið líminu að mýkjast í vatninu í örfáar mínútur. Gerið það sama með hvíta glassúrinn.
  4. Skreytið húsið að vild með sælgætinu og silfurkúlunum. Leyfið líminu að storkna áður en húsið er sett saman. Hægt er að skera hurðina út og opna hana ef þið kjósið það.
  5. Setjið botnstykkið á bretti og límið rönd neðst á fremri gaflinn og staðsetjið gaflinn fremst á botnstykkið. Límið þá neðri hlutann af annarri hliðinni og hliðina og festið við gaflinn. Endurtakið með hina hliðina og aftari gaflinn.
  6. Sprautið hvíta glassúrnum á samskeytin, á hurð og þakskeggið.

Unnið í samstarfi við ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading