Barbeque Grísarif með epla-maíssalati og heimagerðu hrásalati

  • Fyrir 4

Það er eitthvað svo sumarlegt að grilla grísarif og ákveðin stemning sem fylgir því að bera þau fram. Vissulega er gott að hafa góðar munnþurrkur við höndina en það er bara hluti af þessu. Barbeque grísarifin frá Kjarnafæði eru forsoðin og því er ekki mikið meira mál að grilla þau en pylsur. Með þessu ferska og stórgóða meðlæti verður þetta algjör veislumáltíð sem gaman er að bjóða vinum upp á.

Innihald:

2 pakkningar Barbeque grísarif frá Kjarnafæði

Aðferð:

  1. Rifin eru soðin og því þarf ekkert annað að gera en að hita grillið vel og skella þeim beint á grillið.
  2. Það er ríflegt magn af bbq sósu í pakkningunni svo ég mæli með að setja hana í skál og pensla rifin með henni þegar þau eru grilluð.
  3. Mér finnst best að grilla þau þar til sósan er orðin vel dökk en það er auðvitað smekksatriði. Berið fram með ananas salsa, heimagerðu hrásalati og enn meiri bbq sósu.

Maíssalat með eplum og avocado

1 dós maískorn í dós

½ avocado, vel þroskað

1 pink lady epli (eða rautt epli í minni kantinum)

Safi úr 1 sítrónu

Salt og pipar eftir smekk

1 msk. söxuð fersk steinselja

Aðferð:

  1. Skerið avocado og eplið í smáa bita og setjið í skál.
  2. Setjið maískornið út í ásamt sítrónusafa, salti og pipar og steinselju.
  3. Látið taka sig í kæli í smástund áður en það er borið fram.

Heimagert hrásalat

250g ferskt rauðkál

250g ferskt hvítkál

1 stór gulrót

180g majónes, má vera létt majónes eða 50/50 majónes og sýrður rjómi

2 msk. hunang

2 msk. eplaedik

2 tsk. dijon sinnep

1 tsk. fínt malað sjávarsalt

½ tsk. nýmalaður svartur pipar

Aðferð:

  1. Saxið kálið smátt eða rífið á grófu rifjárni og setjið í skál.
  2. Rífið gulrótina og setjið út í.
  3. Hrærið saman í skál því sem á að fara í sósuna og blandið saman við kálið.
  4. Berið fram með rifjunum. Geymist vel í kæli.

 

Unnið í samstarfi við Kjarnafæði.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading