Mýksta og besta focaccia sem til er! Stökkt að utan og lungamjúkt að innan með bragðmiklu pestói í aðalhlutverki. Hægt er að nota hvaða álegg sem er!
Focaccia með rauðu pestói, ólífum og kokkteiltómötum

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Mýksta og besta focaccia sem til er! Stökkt að utan og lungamjúkt að innan með bragðmiklu pestói í aðalhlutverki. Hægt er að nota hvaða álegg sem er!

Pretzel bitar eru mini útgáfa ef hinum þekktu þýsku pretzels. Krispí að utan en mjúkir að innan og passa sérlega vel með ísköldum bjór. Huinangs-sinnepssósan er algerlega nauðsynleg með!

Falleg og bragðgóð ostakúla með mexíkósku ívafi sem hentar sérlega vel í Hrekkjavökupartýið. Það tekur enga stund að græja hana og passar með allskonar kexi og grænmeti!

Þurfum við ekki alltaf fleiri kjúklingauppskriftir í líf okkar? Mér finnst það allavega. Þessi kjúklingaréttur er ótrúlega einfaldur í framkvæmd en bragðmikill og djúsí. Úrbeinuð og meyr kjúklingalæri eru fyrst brúnuð á pönnu og fá síðan að malla í rjómalagaðri …

Loksins, loksins er komin uppskrift að stórkostlegum, almennilegum glútenlausum flatkökum sem líkjast okkar allra bestu íslensku flatkökum sem við elskum öll! Mjúkar, bragðgóðar og fullkomnar hvort sem er þær eru smurðar einungis með smjöri, osti eða hangikjöti.

Það nær ekki nokkurri átt hvað þessar kexsamlokur eru ljúffengar! Þær eru glútenlausar, ótrúlega einfaldar og geymast vel í kæli. Ég nota glútenlausa Nairn‘s súkkulaðikexið sem grunn, legg tvær kexkökur saman með silkimjúku karamellukremi, dýfi þeim í brætt mjólkursúkkulaði og …

Þetta eru svona ekta múffur sem gott er að bjóða upp á í kaffitímanum eftir skóla eða á köldum helgardegi með rjúkandi heitum kaffibolla. Það tekur enga stund að henda í deigið og það þarf ekkert að vesenast með neitt …

Eftirréttir eða kökur sem innihalda bæði kaffi og súkkulaði er með því besta sem til er. Ef þið bætið svo mascarpone og rjóma í jöfnuna verður til eitthvað stórkostlegt sem enginn vegur er að standast. Þessar brownies eru einmitt þannig. …