Þurfum við ekki alltaf fleiri kjúklingauppskriftir í líf okkar? Mér finnst það allavega. Þessi kjúklingaréttur er ótrúlega einfaldur í framkvæmd en bragðmikill og djúsí. Úrbeinuð og meyr kjúklingalæri eru fyrst brúnuð á pönnu og fá síðan að malla í rjómalagaðri pestósósu. Kokkteiltómatarnir koma með smá ferskleika og það er algerlega fullkomið að toppa réttinn með ferskri basilíku og rifnum parmesan. Þetta er réttur sem hentar jafn vel á virkum degi og í saumaklúbbinn eða matarboð – fljótlegur, þægilegur og slær alltaf í gegn. Berið fram með góðu salati, brauði eða pasta og njótið með köldu glasi af hvítvíni ef þannig liggur á ykkur.
Innihald:
- 700g Rose úrbeinuð kjúklingalæri
- 1 msk. ólífuolía
- 1 tsk. hvítlauksduft
- Salt og pipar, magn eftir smekk
- 250ml vatn
- 2 kjúklingateningar
- 2 msk. hveiti
- 250 ml. rjómi
- 130g rautt pestó
- Kokkteiltómatar, magn eftir smekk
- Fersk basilíka
- Ferskur parmesan
Aðferð:
- Kryddið kjúklingalærin með hvítlauksdufti og salti og pipar.
- Setjið ólífuolíu á pönnu og leyfið henni að hitna rólega. Setjið kjúklinginn út á og brúnið vel á báðum hliðum.
- Takið kjúklinginn af pönnunni og leggið á fat.
- Setjið vatn og kjúklingateninga út á pönnuna og hrærið þar til teningarnir eru uppleystir. Skafið vel botninn svo bragðið af kjúklingnum blandist vel við. Hrærið hveitinu saman við til að þykkja soðið.
- Bætið rjómanum og pestóinu út í og hrærið. Setjið kjúklinginn og tómötunum út í sósuna og leyfið réttinum að malla á pönnunni þar til kjúklingurinn er örugglega eldaður í gegn.
- Rífið vel af parmesan yfir réttinn og ferskri basilíku.
- Berið fram með fersku salati, brauði og jafnvel köldu hvítvíni.








Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

