Það er eitthvað svo breskt og fallegt við skonsur og lemon curd. Alveg fullkomið að bera þetta fram með góðu tei síðdegis á rigningardegi. Eða sólskinsdegi, eða bara alla daga? Þetta lemon curd er einfalt í gerð en það þarf smá natni við upphitunina, ef það er ekki gætt að hitastigin gætum við endað með sítrónu ommilettu og það er kannski ekki málið.
Lemon curd (eða sítrónusmjör) er svo líka gott á allt, vöfflur, millilag í kökur ofl. en með þessi tvenna, lemon curd og þessar skonsur er eiginlega af öðrum heimi. Skonsurnar eru líka einfaldar í gerð og almennilegar rúsínur í þær gerir útslagið. Ég er allavega ekki ein af þeim sem tínir rúsínur úr bakkelsi, það er helst að ég bæti aðeins við. Ég nota hér lífrænar rúsínur frá Rapunzel en þær eru alveg sérlega bragðgóðar. Alls ekki of stórar sem mér finnst kostur í bakstri.
Innihald:
400g hveiti
3 tsk lyftiduft
5 msk sykur
120g ískalt smjör í litlum bitum
2 og 1/2dl nýmjólk köld
50g lífrænar rúsínur frá Rapunzel
rifinn börkur af einni sítrónu
1 tsk sítrónudropar
Aðferð:
- Setjið þurrefni í matvinnsluvélina og „púlsið“ nokkrum sinnum, bætið við smjörinu og blandið rétt svo þannig að stærstu bitarnir af smjörinu séu á stærð við baunir.
- Setjið rúsínur, sítrónubörk og sítrónudropa og „púlsið“ svona tvisvar. Bætið mjólkinni út í og blandið rétt svo þannig að deigið loði saman.
- Setjið á hveitistráða borðplötu og hnoðið lítillega, fletjið út þannig að deigið sé 2-3cm á þykkt. Skerið út skonsurnar með glasi eða hringlaga piparkökumóti. Varist samt að snúa glasinu í hringi þegar þið skerið kökurnar, best að skera bara beint niður. Þetta gæti haft áhrif á hvernig þær lyfta sér í ofninum. Leggið þær á plötu klædda bökunarpappír og bakið í 12-14 mín eða þangað til þær eru gullinbrúnar. Látið kólna í svona 15 mín.
Lemon curd
3 sítrónur – safi + raspaður börkur
1 og 1/2 bolli sykur
200g smjör
4 stór egg
1/2 bolli sítrónusafi (af sítrónunum)
1/4 tsk salt
Aðferð:
- Skolið sítrónurnar vel og þerrið. Raspið af þeim börkinn en passið að raspa bara gula hlutann, alls ekki fara niður í þetta hvíta, það er beiskt og ekki gott að hafa með.
- Setjið sykurinn og börkinn í matvinnsluvél og blandið saman í smástund. Bætið út í matvinnsluvélina smjörinu, salti og sítrónusafanum og blandið, bætið svo einu eggi úti í einu.
- Setjið blönduna í stálskál eða pott og hrærið stöðugt í yfir vatnsbaði. Hrærið stöðugt í þangað til blandan fer að þykkna. Þetta tekur svona 15 mínútur og mjög gott að gera þetta á meðan skonsurnar klára að bakast og kólna. Ekki freistast til þess að setja pottinn beint á helluna til þess að flýta fyrir, það er dæmt til þess að enda illa!
- Búðingurinn er svo tilbúinn þegar hann festist á sleif. Setjið í hreina krukku og kælið. Búðingurinn þykknar og stífnar þegar hann kólnar.




