Allar útgáfur af kryddbrauði eru góðar. Það er nú bara þannig en þessi útgáfa er alveg sérlega góð. Virkilega einföld auk þess að vera vegan. Þetta brauð nær sjaldnast að kólna áður en það klárast og er orðið einhversskonar hornsteinn þess sem til er í eldhúsinu.

Þegar fer að kólna í veðri er þetta alveg sérlega gott í kaffitímanum og jafnvel sem nesti í skólann.

Innihald:

3 dl hveiti

3 dl haframjöl

2 tsk kanill

1 tsk negull

1 tsk engifer

1/4 tsk sjávarsalt

1 tsk matarsódi

1 tsk kakó

2 dl hrásykur

3 dl Oatly haframjólk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 200°C
  2. Blandið saman öllum þurrefnum í stóra skál og hrærið saman
  3. Hrærið haframjólkinni varlega saman við með sleikju.
  4. Klæðið ílangt form (jólakökuform) með bökunarpappír eða smyrjið vel og setjið deigið í. Stráið haframjöli eða söxuðum hnetum yfir ef vill.
  5. Bakið í 40 mín eða þar til prjónn kemur hreinn út sem stungið er í brauðið.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading