Ein af mínum uppáhalds kökum eða eftirréttum er Banoffee pie. Það er dásamleg blanda af kexbotni, karamellu, þeyttum rjóma, bönunum og smá rifið súkkulaði á toppinn. Mig langaði að prófa að gera einhvers konar marengsútgáfu af því og heppnaðist hún ótrúlega vel. Passar sérlega vel á veisluborðið, í saumaklúbbinn eða sem eftirréttur á hátíðisdögum.
Innihald:
2 dl eggjahvítur eða 6 stórar, helst við stofuhita
360g sykur
1/2 tsk edik
1 tsk maizena mjöl
Digestive kex án súkkulaðis, mulið
3 bananar
Karamellusósa – sjá uppskrift
500ml rjómi
Suðusúkkulaði til að raspa yfir ef vil
Aðferð:
- Byrjið á því að þeyta eggjahvíturnar, passið að skálin og þeytarinn sé tandurhrein og engar fituleyfar. Mér finnst gott að byrja á því að strjúka yfir með eldhúspappír sem ég hef sett aðeins af edik í.
- Þegar toppar byrja að myndast í eggjahvíturnar byrjið þá að bæta við 1 msk af sykri í einu og þeytið vel á milli. Þegar allur sykurinn er kominn í og hann uppleystur að mestu setjið þá edikið og maizena mjölið saman við.
- Teiknið 3 ca. 20 cm hringi á bökunarpappír og skiptið deiginu í þrennt. Mótið botnana með bakhliðinni á skeið eða spaða.
- Hitið ofninn í 180°C, setjið botnana inn í ofninn og lækkið hitann strax í 130°C og bakið í 90 mín. Slökkvið á ofninum og látið botnana kólna í 4-5 klst eða yfir nótt.
- Þeytið rjómann, passið að stífþeyta hann ekki alveg. Myljið nokkrar kexkökur og skerið bananana í sneiðar.
- Setjið einn botn á kökudisk, smyrjið 1/3 af rjómanum á botninn. Raðið bananasneiðum á rjómann, dreyfið karamellu eftir smekk yfir bananana og setjið kexmylsnu yfir. Magn af kexmylsnunni eða karamellunni fer bara eftir smekk, mér finnst meira betra en minna.
- Setjið botn nr. 2 ofan á og endurtakið. Setijð 3ja botninn á, smyrjið með restinni af rjómanum, setjið karamelluna yfir og toppið með kexmylsnu og röspuðu súkkulaði.
- Ég mæli með því að setja á tertuna með góðum fyrirvara, hún verður bara betri við það.
Karamella:
200g sykur
90g smjör við stofuhita
1/2 bolli rjómi frá Örnu
Örlítið sjávarsalt
Aðferð:
- Bræðið sykurinn rólega í þykkbotna potti. Þegar sykurinn er uppleystur og orðinn gylltur setjið smjörið út í og hrærið vel.
- Þegar smjörið er samlagað sykrinum hellið þið rjómanum út í og hrærið vel.
- Slökkvið undir og setjið örlítið sjávarsalt. Karamellan stífnar þegar hún kólnar en alltaf er hægt að velgja hana aðeins til þess að hún sé meðfærilegri.






