109 Ólafsson – Ferskur gin kokkteill með sítrónu & engiferi

Ólafsson er besta gin í heimi. Vissulega mín skoðun en margra annarra einnig. Það er margverðlaunað þrátt fyrir að hafa verið á markaði í einungis rúmt ár. Ég drakk semsagt ekki gin fyrr en ég smakkaði Ólafsson. Það segir nú ansi margt er það ekki?

Ginið er nefnt eftir Eggerti Ólafssyni skáldi og náttúrufræðingi sem uppi var á 18. öld. Ginið býr yfir einstakri mýkt og þar fær íslenska vatnið að njóta sín vel. Passar sérlega vel eitt og sér með góðu tónik en einnig í allra handa kokkteila.

Innihald:

6 cl Ólafsson gin

4,5 cl sítrónusíróp (uppskrift fylgir)

200ml engiferbjór

Mulinn ís

Aðferð:

  1. Byrjið á því að gera sírópið og kælið.
  2. Setjið mulinn ís til rúmlega hálfs í hristara.
  3. Setjið síróp og Ólafsson gin yfir ísinn og hristið vel.
  4. Hellið í 2 glös á fæti og toppið með engiferbjór. Takið lokið af hristaranum og setjið ísinn yfir drykkinn og skreytið með sítrónu og berki.

Sítrónusíróp

1 bolli sykur
1 bolli vatn
Safi og börkur úr 3 sítrónum.

 

  1. Setjið innihaldsefnin í pott og sjóðið þar til sykurinn er uppleystur.
  2.  Síið og setjið á flösku eða krukku og kælið. Geymist vel í kæli.

 

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading