Allt með karamellu er gott. Ef það hefur farið framhjá einhverjum þá er ég mjög mikill aðdáandi alls sem karamella er í. Þessi kaka er sannarlega engin undantekning. Það er einfalt að skella í hana og engin flókin hráefni eða aðferð. Og það er alveg ljóst að skúffukökur þurfa alls ekki að vera súkkulaðibotn og súkkulaðikrem!
Innihald:
1/2 bolli sykur
3/4 bolli púðursykur
2 stór egg við stofuhita
2 tsk vanilludropar
2 bollar hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 tsk sjávarsalt
100ml jurtaolía
1 bolli karamellu jógúrt, einnig er hægt að nota hreint jógúrt eða súrmjólk. Þá er gott að bæta við 1 tsk. af karamellusósu með.
1/3 bolli sjóðandi vatn
Aðferð:
- Setjið egg, sykur og púðursykur saman í skál og þeytið vel þar til létt og ljóst. Bætið þá vanilludropum saman við og þeytið aðeins lengur.
- Sigtið saman við þurrefnin og hrærið aðeins í, setjið þá olíu og jógúrt saman við og hrærið bara rétt þannig að deigið sé samlagað, bætið þá heitu vatni saman við og hrærið áfram en alls ekki hræra deigið of mikið.
- Hitið ofninn í 175°C og smyrjið eða setjið bökunarpappír í skúffukökuform. Setjið deigið í formið og sléttið yfirborðið.
- Bakið í 30-35 mín á blæstri. Fer eftir ofnum þó en kakan er tilbúin þegar prjónn kemur hreinn úr sem stungið er í kökuna.
- Kælið kökuna alveg, útbúið kremið og smyrjið kökuna með kreminu,
Karamellu smjörkrem
120g mjúkt smjör
110g mjúkt smjörlíki
1/2 bolli saltkaramellusósa, heimagerð eða keypt tilbúin
2 tsk vanilludropar
2 bollar flórsykur
- Þeytið saman smjör og smjörlíki þar til blandan verður mjög ljós.
- Bætið við karamellu og vanilludropum og þeytið áfram.
- Blandið flórsykrinum saman við og þeytið vel. Smyrjið kalda kökuna og dreyfið smávegis af karamellusósunni yfir ef vill.





