Loksins er kominn súputími! Matar- og bragðmiklar súpur eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Helst þannig að það jaðri við að þær séu pottréttir og þessi er akkúrat þannig. Hún er stútfull af allskonar góðgæti og best finnst mér að láta hana malla lengi. Uppskriftin er líka frekar stór svo hún dugar vel fyrir okkur fjölskylda sem matur í tvo daga en það er einnig hægt að frysta hana í smærri skömmtum og taka með í nesti t.d.

Þetta sambland af grænmeti, kjöti, rifnum cheddar og kryddum er bara eitthvað svo ómótstæðilegt og til þess að gera gott enn betra toppa ég hana með fersku avocado, sýrðum rjóma og meira af rifnum cheddar. Gleðilegt haust segi ég nú bara!

Innihald:

  • 1 stór laukur
  • 4 hvítlauksrif
  • 5 gulrætur
  • 1 græn paprika
  • ½ blaðlaukur
  • 2 dósir af söxuðum tómötum
  • 1.2l vatn
  • 3 nautakraftsteningar
  • 500g nautahakk
  • 1 tsk. olía
  • 1 bréf taco krydd
  • Salt og pipar
  • ½ krukka taco sósa
  • 80g tómatsósa
  • 50g tómatpúrra
  • 150g rjómaostur
  • 250ml rjómi
  • 100g rifinn cheddar + auka ofan á

Ofan á súpuna:

  • Sýrður rjómi
  • Ferskt kóríander
  • Avocado
  • Nachos flögur

Aðferð:

  1. Byrjið á því að saxa laukinn og hvítlaukinn og setjið til hliðar. Saxið restina af grænmetinu og takið til öll hráefnin í súpuna.
  2. Hitið 1 msk. af olíu í stórum potti og steikið laukinn og hvítlaukinn við meðalhita þar til hann er orðinn mjúkur og glær. Passið að brenna ekki laukinn.
  3. Setjið restina af grænmetinu út í pottinn og steikið áfram.
  4. Hitið pönnu og setjið smávegis af olíu. Brúnið hakkið og kryddið með taco kryddi.
  5. Þegar kjötið er gegnum steikt setjið það þá út í pottinn. Hellið 1 dl af vatninu út á pönnuna og skafið upp botninn og setjið út í pottinn. Þarna er mjög mikið bragð og með þessu verður súpan enn kraftmeiri.
  6. Setjið tómatana í dósunum, vatnið, taco sósu, tómatsósu, tómatpúrru og rjómaost út í pottinn ásamt nautakraftinum. Látið malla við vægan hita í helst ekki minna en 1 klst.
  7. Setjið þá 100g af rifnum cheddar út í súpuna, þegar hann hefur bráðnað bætið þá rjómanum saman við og smakkið til með salti og pipar.
  8. Berið fram með meira af cheddar, sýrðum rjóma, ferskum avocado sneiðum og muldum nachos flögum.

Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading