– Vegan uppskrift
Þessir klattar eru alveg ótrúlega bragðgóðir, einfaldir og fljótlegir. Allt í einni skál, óþarfi að kæla deigið og baksturstíminn er stuttur. Þeir eru vegan og henta því öllum sem forðast dýraafurðir og þeim sem eru annað hvort með mjólkur- eða eggjaofnæmi. Bragðlausa kókosolían frá Rapunzel er ótrúlega fjölhæf og hentar jafn vel í bakstur, hvort sem er smákökur eða annað bakkelsi, hvet ykkur til að prófa hana næst þegar á að baka eitthvað gómsætt.
Innihald:
220g gróft lífrænt hnetusmjör frá Rapunzel
90g bragðlaus kókosolía frá Rapunzel
100g Cristallino hrásykur
90g púðursykur
2 tsk vanilludropar
130-150ml Oatly haframjólk ikaffe
200g hveiti
1 tsk matarsódi
¼ tsk sjávarsalt
160g 70% súkkulaði frá Rapunzel
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C blástur. Saxið súkkulaðið og klæðið 2 bökunarplötur með bökunarpappír.
- Setjið hnetusmjör og kókosolíu í skál og pískið saman. Setjið sykur, vanilludropa og 130ml af haframjólkinni saman við og hrærið.
- Sigtið hveitið, matarsódann og saltið yfir og skiptið yfir í sleif og hrærið saman þar til deigið verður samfellt. Ef deigið er of þurrt má setja örlítið í viðbót af haframjólkinni.
- Setjið þá súkkulaðið saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Setjið deigið á plötuna með ískúlu skeið eða 2 matskeiðum. Bakið klattana í ca. 10 mín, fylgist samt vel með, ofnar geta verið mjög misjafnir.
- Ég fékk ca. 30 klatta úr uppskriftinni og þeir þola vel að vera settir í frysti.
Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.