Hrekkjavakan er á næsta leyti og þá er svo gaman að baka eitthvað sérlega hryllilegt eins og þessa litríku kleinuhringi. Það er auðveldara að steikja kleinuhringi en margir halda en auðvitað þarf að vara sig á heitri olíunni og gefa sér nægan tíma. Ég notaði matarlitina frá Dr. Oetker í glassúrinn en þeir eru ótrúlega litsterkir og koma vel út. Ég notaði einnig marengsblönduna frá þeim í draugana en hún er alveg ótrúlega auðveld í notkun og það er engin leið að klúðra marengsnum með henni! Útkoman var mjög skemmtileg og vakti mikla lukku.

Innihald:

4 bollar hveiti

¼ bolli sykur

½ tsk. salt

2 ¼ tsk. þurrger

140g smjör

280ml nýmjólk

2 stór egg við stofuhita

2-3 kubbar Palmínfeiti

 

Marensdraugar

1 poki marengsduft frá Dr. Oetker

75ml vatn

Dökkt súkkulaði eða svartur matarlitur frá Dr. Oetker

Sykuraugu frá Dr. Oetker

 

Aðferð:

  1. Setjið duftið og helminginn af vatninu í skál og byrjið að þeyta. Setjið restina af vatninu saman við og þeytið þar til marengsinn myndar stífa toppa.
  2. Setjið marengsinn í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið drauga á bökunarpappír. Bæði er hægt að gera toppa en einnig er skemmtilegt að gera draugana flata.
  3. Bakið draugana við 100°C blástur í 50 mín.

 

Glassúr

4 bollar flórsykur

Grænn, appelsínugulur, fjólublár og svartur matarlitur frá Dr. Oetker

Svart kökuskraut frá Dr. Oetker

Vatn

 

Aðferð:

  1. Skiptið flórsykrinum í 4 skálar.
  2. Setjið 1-2 tsk. af hverjum matarlit út í skálarnar.
  3. Byrjið á því að setja 1 msk. af vatni út í flórsykurinn í einu. Þannig er hægt að passa að glassúrinn verði ekki of þunnur. Magn af matarlit og þykkt glassúrsins fer eftir smekk og því gef ég ekki upp nákvæmt magn. Þykktin á glassúrnum finnst mér best ef hann er á við þykkt kökudeig.

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa draugana og koma þeim í ofninn.
  2. Setjið þurrefnin í hrærivélaskál og hrærið aðeins saman með hnoðaranum.
  3. Bræðið smjörið í potti, bætið svo mjólkinni út í. Hellið blöndunni rólega saman út í þurrefnin. Hrærið aðeins í og setjið síðan eggin saman við. Látið hrærivélina hnoða deigið í 5 mín á rólegum hraða.
  4. Takið deigið úr skálinni og mótið í kúlu. Spreyið skálina að innan með olíuspreyi og setjið deigið aftur í skálinu. Spreyið aðeins yfir yfirborðið á deiginu og hyljið með plastfilmu.
  5. Látið deigið hefast á borði í 90 mín.
  6. Klippið út ferninga úr bökunarpappír, nægilega stóra til þess að kleinuhringur passi á hann eða ca. 10cmx10cm.
  7. Rúllið út deigið með kökukefli þar til það er um hálfur sentimetri að þykkt. Skerið út kleinuhringi með kleinuhringjajárni eða einhverju kringlóttu formi. Skerið minni hring innan úr með kringlóttu áhaldi, hægt að nota kremstút eða tappa ef ekki vill betur. Setjið hvern kleinuhring ofan á bökunarpappírsbút. Leggið kleinuhringina á bökunarplötu.
  8. Hitið ofninn í 40°C og úðið að innan með vatni. Setjið plöturnar með kleinuhringjunum í ofninn og hefið í 40 mín.
  9. Setjið palmínkubbana í þykkbotna pott og hitið feitina upp í 175°C. Setjið bökunarplötu nálægt pottinum og klæðið með tvöföldu lagi af eldhúspappír.
  10. Steikið kleinuhringina í feitinni og passið að halda hitastiginu jöfnu. Ef feitin verður heitari en þetta geta hringirnir brennst að utan en orðið hráir innan í.
  11. Þegar kleinuhringirnir eru tilbúnir veiðið þá upp úr og leggið á eldhúspappírinn. Endurtakið þar til allir kleinuhringirnir eru steiktir.
  12. Útbúið glassúrinn og þegar hringirnir hafa kólnað að mestu dýfið þeim þá í glassúrinn og dreifið kökuskrauti strax yfir.
  13. Það er hægt að frysta kleinuhringina en þá er best að gera það án glassúrsins.

 

 

Unnið í samstarfi við Dr. Oetker-ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading