Ef það er eitthvað sem er alltaf vinsælt á mínu heimili þá eru það kjúklinga- og pastaréttir af öllu tagi. Og hvers vegna ekki að gera þá geggjaða útgáfu af lasanja? Aðeins öðruvísi en þessi hefðbundna þar sem ég nota kjúkling en sleppi rauðu sósunni. Í staðinn nota ég vel ef hvítri sósu sem fer ótrúlega vel með kjúklingnum, sveppunum og spínatinu. Aðalmálið er svo auðvitað ostur og þá mikið af honum. Bæði á milli laganna og ofan á. Ég lofa að þessi á eftir að slá í gegn!

Innihald:

  • 500g eldaður kjúklingur, það er snjallt að nota afganga eða kjöt af heilum kjúkling
  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 laukur, meðalstór
  • 4 hvítlauksrif
  • 130g sveppir
  • 125g ferskt spínat
  • 2 tsk. óreganó
  • 1 tsk. ítölsk kryddblanda
  • 500ml vatn
  • 2 kjúklingateningar
  • 30g hveiti
  • 2 dl. nýmjólk
  • 2-3 msk. rifinn parmesan
  • Salt og nýmalaður svartur pipar
  • Lasanjaplötur sem ekki þarf að forsjóða
  • Pizzaostur frá Gott í matinn, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að græja kjúklinginn. Ef þið notið kjöt af heilum kjúkling, rífið það þá af eða eldið heilar bringur og rífið svo í sundur með tveimur göfflum. Ég mæli ekki með því að skera bringur í bita og steikja svo, áferðin verður ekki eins góð.
  2. Hitið ofninn í 180°C blástur.
  3. Saxið laukinn smátt og hitið olíuna á pönnu. Steikið laukinn við meðalhita þar til hann verður glær.
  4. Saxið sveppina og geymið aðeins til hliðar. Saxið hvítlaukinn smátt og bætið út á pönnuna. Steikið í 1 mín og bætið þá sveppunum saman við. Setjið örlítið salt og pipar yfir grænmetið og steikið saman í smástund. Bætið þá óreganó og ítalskri kryddblöndu út á og hrærið.
  5. Bætið spínatinu út á pönnuna. Hrærið í því þar til það hefur mýkst og skroppið saman.
  6. Setjið þá eldaða kjúklinginn út á pönnuna og steikið í 2-3 mín með grænmetinu. Setjið þá pönnuna til hliðar.
  7. Hitið vatnið að suðu í litlum potti og setjið kjúklingateningana saman við. Hrærið þar til teningarnir eru uppleystir. Takið þá 1 dl. af soðinu til hliðar.
  8. Setjið hveiti í skál og hrærið 1 dl. af soðinu smám saman við hveitið.
  9. Á meðan soðið mallar rólega, hrærið þá soð/hveitiblöndunni saman við. Pískið varlega á meðan þið bætið nýmjólkinni út í. Látið sósuna malla í ca. 5 mín þar til hún hefur náð góðri þykkt. Bætið þá parmesanostinum saman við, smakkið til með salti og pipar og takið svo pottinn af hellunni.

Samsetning:

  1. Takið meðalstórt eldfast mót og smyrjið góðu lagi af sósunni í botninn.
  2. Dreifið 1/3 af kjúklingnum yfir sósuna og dreifið aðeins af rifnum osti yfir.
  3. Raðið þá lasanjaplötum yfir og endurtakið þannig að það séu tvö lög af lasanjaplötum.
  4. Klárið að setja saman lasanjað þannig að efst komi restin af sósunni, kjúklingnum og þá vel af rifnum osti.
  5. Bakið í ca. 35 mín eða þar til osturinn er orðinn fallega gylltur og lasanjaplöturnar fullsoðnar.
  6. Berið fram með fersku salati, snittubrauði og rifnum parmesan.

Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading