Indverskur sætkartöflu- og blómkáls baunapottréttur með hýðishrísgrjónum 

Það er bara komið að því, haustið handan við hornið, skólarnir að byrja og rútínan að taka við. Einhverjir dusta rykið af löngu gleymdum áramótaheitum og vetrarmaturinn fer hægt og rólega að taka yfir létt salöt og grillrétti.

Pottréttir eins og þessi eru í algjöru uppáhaldi hjá mér. Ekki bara af því að hann er ótrúlega bragðgóður og eldar sig næstum sjálfur, heldur er þetta alveg ótrúlega ódýr réttur, næringarríkur og passar akkúrat inn í kjötlausu dagana þar sem hann er vegan.

Þetta er ljúffeng blanda af sætum kartöflum, blómkáli, kjúklingabaunum, tómötum og kókosmjólk og nokkrum góðum kryddum sem ylja og næra vel.

Ég tók reyndar saman hvað innihaldsefnin gætu kostað og í allan réttinn gæti það verið um 1500 krónur og þá er ennþá afgangur af nokkrum innihaldsefnum. Mér reiknast til að skammtarnir séu um 8 og er þetta því líklega með hagkvæmustu kostum sem hægt er að bjóða upp á í kvöldmat. Að auki frystist hann mjög vel og upplagt að setja afganga í frysti og taka síðar með í nesti.

Innihald:

1 msk. ólífuolía

1 stór laukur

3 cm bútur ferskt engifer

4 hvítlauksrif

2 tsk. karrý

1 1/2 tsk. cummin

2 tsk. túrmerik

1 tsk. kóríanderduft

1 stór sæt kartafla, um 500g

400g frosið blómkál, þiðið

1 dós niðursoðnir tómatar

1 dós niðursoðnar kjúklingabaunir

450ml vatn

2 msk. grænmetiskraftur

1 dós kókosmjólk frá Rapunzel

1 tsk. sjávarsalt

Nýmalaður svartur pipar eftir smekk

1 tsk Garam masala, má sleppa

1 dl kasjúhnetur, þurrristaðar á pönnu

Ferskt kóríander, má sleppa

 

Aðferð:

  1. Skerið laukinn, hitið olíu í þykkbotna potti og steikið laukinn í nokkrar mínútur eða þar til hann verður glær.
  2. Afhýðið og skerið sætu kartöfluna í grófa bita. Setjið blómkálið í sigti og látið renna volgt vatn á það í smástund og setjið til hliðar.
  3. Saxið engifer og hvítlauk og bætið við, kryddið með karrý, cummin, túrmeriki og kóríander og steikið saman í 1-2 mín, varist að brenna kryddið.
  4. Setjið sætu kartöfluna og blómkálið saman við ásamt tómötum, kjúklingabaunum, vatni og grænmetiskrafti. Látið malla við miðlungshita í 20 mín.
  5. Þegar sætu kartöflurnar eru að verða soðnar í gegn, bætið þá við kókosmjólkinni og sjóðið áfram í 10 mín.
  6. Smakkið til með salti, pipar og garam masala ef vill.
  7. Berið fram með fersku kóríander, ristuðum kasjúhnetum og hýðishrísgrjónum.

 

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

2 Comments

  1. Júlía

    Hæ, hvað heldurðu að uppskriftin sé fyrir marga?

    1. Valgerður Gréta G. Gröndal

      Hæhæ! Ég myndi segja að hún dugi fyrir allavega 6 svanga 😊
      Kv. Valla

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading