Ítalskar kjötbollur í bragðmikilli marinara tómatsósu

Þessar kjötbollur eru alveg ótrúlega þægilegar, það tekur enga stund að útbúa þær og þær eru síðan bakaðar í ofni í stað þess að þurfa að standa við pönnuna og steikja þær. Það sem gerir þær alveg ómótstæðilegar eru kryddin frá Liquid Organic en það eru fersk krydd sem koma í litlum flöskum. Sparar tíma og fyrirhöfn og gefa fullkomið kryddbragð. Í þessar nota ég þrjár tegundir, chili, hvítlauk og basiliku. Það besta er að flöskurnar geymast lengi og því þurfum við ekki að vera að henda afgangnum af kryddunum eins og við lendum oft í þegar við kaupum fersk krydd.

Ég nota kryddin auðvitað í sósuna líka sem er gerð frá grunni og er einnig mjög einföld og gott að græja hana á meðan bollurnar eru í ofninum. Svo sýð ég gott spaghettí og ber fram með bollunum og sósunni. Þetta er frekar stór uppskrift en ég mæli með að taka helminginn af bollunum og frysta þær. Frábært að eiga tilbúnar bollur í frysti þegar við nennum ekki að elda.

 Innihaldsefni:

1kg nautahakk

1 stór laukur saxaður smátt

1 bolli brauðrasp

2 egg

1 msk. þurrkað oregano

1 msk. Liquid Organic hvítlaukur

2 tsk. Liquid Organic basilika

1 tsk. Liquid Organic chili

Salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk

500g spaghettí

 

Ítölsk marinara tómatsósa

3 dósir saxaðir tómatar

1 laukur saxaður smátt

2 hvítlauksrif söxuð smátt

2 tsk Liquid Organic basilika

1 msk þurrkað oregano

1 msk Liquid Organic hvítlaukur

Salt og pipar eftir smekk

1 tsk hunang eða hlynsíróp

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja ólífuolíu í pott og hitið hægt upp, setjið laukinn út í og mýkið hann á miðlungshita. Þegar hann er orðinn glær og aðeins byrjaður að brúnast bætið þið hvítlauknum út á, steikið hann með lauknum í 1 mínútu og bætið svo við tómötunum.
  2. Bætið við því næst við kryddum og sætu, smakkið til með salti og pipar og látið malla á vægum hita á meðan bollurnar eru í ofninum.

Sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum og berið fram með bollunum, sósunni og einhverju góðu brauði.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

 

 

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading