Poke skálar eru upprunalega frá Hawaii en þær eiga það til að blandast saman við japanska matargerð líkt og sushi. Poke er í raun hrár fiskur skorinn í bita og maríneraður en það þekkist einnig að hafa annað prótín í skálunum. Það er hægt að setja saman sína skál eftir eigin hentisemi og þetta er mín útgáfa sem ég deili með ykkur. Sítrónusafinn í maríneringunni veldur því að laxinn eldast í rauninni án þess að nota hita líkt og við ceviche gerð. Það er smá dútl í kringum þetta en sannarlega þess virði.
Innihald:
1 skammtur sushi hrísgrjón, uppskrift fylgir
250g marineraður ferskur lax, skorinn í litla teninga
Agúrka í þunnum sneiðum
Avocado í sneiðum
Edamame baunir
Gulrót skorin í þunnar sneiðar
Kasjúhnetur
Chili majó
Sushi hrísgrjón
2 bollar sushi hrísgrjón frá Blue dragon
2 bollar vatn
1/4 bolli hrísgrjónaedik frá Blue dragon
4 tsk sykur
1/2 tsk sjávarsalt
Aðferð:
- Setjið ósoðin hrísgrjón í sigti og skolið undir köldu vatni þar til vatnið verður tært. Setjið hrísgrjónin í pott ásamt köldu vatni og leggið í bleyti í 30 mín.
- Látið vatnið renna af hrísgrjónunum og setjið 2 bolla af vatni í pottinn og setjið á hellu og kveikið undir.
Marinering á laxinn
1 hvítlauksrif marið
1 tsk rifið ferskt engifer
2 msk mírin
2 msk sojasósa
Safi úr 1 sítrónu
1 msk sesamolía
1 msk hrísgrjónaedik frá Blue dragon
2 vorlaukar, græni hlutinn fínt saxaður
Aðferð:
- Blandið öllu saman í skál. Setjið laxabitana í skál og hellið maríneringunni yfir. Látið marínerast í kæli í 40 mín.
- Varist að opna pottinn á meðan. Slökkvið undir og látið hrísgrjónin bíða í 15 mín án þess að taka lokið af.
- Setjið hrísgrjónaedik, sykur og salt í litla skál og hitið í örbylgjuofni þar til sykurinn er uppleystur. Hellið yfir tilbúin hrísgrjónin og veltið þeim fram og til baka þar til edikið hefur dreifst um þau.
Chili mæjó
1 dl majónes
1 msk sriracha sósa
Aðferð:
Hrærið saman og setjið yfir skálina.






Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

