Þessi eftirréttur er nánast af öðrum heimi þó ég segi sjálf frá. Það er svolítið vesen að útbúa hann en það er fullkomlega þess virði!
Botninn er gerður úr jólakremkexinu frá Frón með negul og kanil, ofan á hann kemur stórkostleg heimagerð karamellumús, því næst þeyttur rjómi og toppað með kanil marengs. Sparilegt og stórkostlegt. Og það er hægt að gera hann með góðum fyrirvara þar sem hann verður bara betri ef hann fær að bíða aðeins í kæli. Þennan verðið þið bara að prófa.
Innihald:
Kanilmarengs:
2 eggjahvítur
2 ½ dl. púðursykur
½ tsk. edik
Salt á hnífsoddi
2 tsk. kanill
Aðferð:
- Hitið ofninn í 130°C.
- Setjið eggjahvíturnar í skál og byrjið að þeyta. Bætið púðursykrinum smám saman við og bætið salti og ediki við.
- Klárið að bæta sykrinum út í og þeytið þar til marensinn er orðinn alveg stífur. Dustið þá kanilnum yfir marengsinn og blandið með sleikju.
- Smyrjið marengsinum á bökunarpappírsklædda ofnplötu og bakið í 1 klst. Leyfið þá marengsinum að kólna í ofninum.
Kexbotn:
100g Kremkex með kanil og negul frá Frón
1 msk. brætt smjör
Karamellumús
4 eggjarauður
50g sykur
2 tsk. maízenamjöl
650ml rjómi (skipt)
1 tsk. vanilludropar
Salt á hnífsoddi
150g þykk karamellusósa
Aðferð:
- Setjið eggjarauðurnar í skál ásamt sykri og maízenamjöli. Pískið þar til blandan er orðin létt í sér og ljós.
- Setjið 250ml af rjómanum, vanilludropana og salt í meðalstóran pott og hitið að suðu.
- Hrærið helmingnum af heitum rjómanum rólega saman við eggjablönduna. Þegar þetta er samlagað setjið þá restina af rjómanum út í og hrærið. Setjið blönduna þá í pottinn og hitið á meðalhita.
- Hrærið röskalega í búðingnum og leyfið honum að malla í um það bil 5 mínútur eða þar til blandan er farin að þykkna vel og nær 76°C.
- Blandið þá karamellunni saman við og hrærið vel í.
- Setjið búðinginn í skál og setjið plastfilmu yfir, alveg þannig að hún snertir allt yfirborð búðingsins. Kælið í nokkrar klst, helst yfir nótt.
- Stífþeytið þá 250ml af rjóma og blandið varlega saman við búðinginn með sleikju.
- Þeytið síðustu 150ml af rjómanum.
Samsetning:
- Myljð kexið smátt og blandið saman við brætt smjör. Setjið í botninn á fallegum glösum, geymið smávegis til að skreyta með.
- Setjið karamellumúsina ofan á kexmylsnuna, annað hvort með sprautupoka eða skeið.
- Sprautið rjómanum ofan á karamellumúsina. Toppið með kanilmarengs og meira af kexmylsnu.











Unnið í samstarfi við ÍSAM.

