- Fyrir 4
Það er fátt sem fer betur með grísakjöti en ferskur ananas og sætar kartöflur koma beint á eftir. Þessar grísahnakkasneiðar frá Kjarnafæði koma tilbúnar beint á grillið og því ekkert sem þarf að gera við þær nema að grilla þær. Þá er upplagt að bera fram ferskt og gott meðlæti með kjötinu og þetta ananas salsa og sætkartöflufranskarnar passa fullkomlega með.
Það er auðveldara og ódýrara en margir halda að vinna með ferskan ananas svo ég mæli innilega með að þið prófið að gera þetta ananas salsa. Afgangar geymast vel í loftþéttu boxi og jafnvel gott að borða það eitt og sér daginn eftir, svo gott er það!
Innihald:
1 pakkning léttreyktar grísahnakkasneiðar barbeque frá Kjarnafæði
Barbeque sósa ef vill, bæði til að pensla með og bera fram með kjötinu.
Aðferð:
- Takið kjötið úr kæli og leyfið því að bíða á borðinu í ca. 1 klst. Það er nefnilega ekki gott að skella ísköldu kjöti beint á grillið.
- Hitið grillið vel upp og skellið sneiðunum á grillið. Penslið aukalega með bbq sósu ef þið viljið í lokin.
- Berið fram með ananas salsa, sætkartöflufrönskum og meiri bbq sósu.
Ananas salsa
½ ferskur ananas
½ rauð paprika
½ rauðlaukur
1 msk. ferskt kóríander
Safinn úr einu lime
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Skerið toppinn og af ananasnum af. Skerið því næst börkinn af sem næst kjötinu og sneiðið svo botninn af. Skerið því næst ananasinn niður meðfram kjarnanum. Takið helminginn af kjötinu og saxið smátt og setjið í skál.
- Skerið paprikuna og rauðlaukinn smátt og setjið saman við.
- Saxið kóríanderið og setjið út í. Kreistið lime safa yfir, saltið og piprið eftir smekk.
Sætkartöflufranskar
1 stór sæt kartafla
2 msk. ólífuolía
3 tsk. maizenamjöl
1 tsk. hvítlauksduft
½ tsk. reykt paprikuduft
Nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Sjávarsalt eftir smekk
Aðferð:
- Flysjið kartöfluna og skerið í franskar. Setjið þær í skál og látið renna kalt vatn í skálina. Látið þær liggja í köldu vatninu í 30 mín.
- Hellið vatninu af og þerrið franskarnar vel á hreinu viskastykki.
- Setjið franskarnar í skál og dreifið olíunni yfir. Veltið þeim vandlega svo þær séu allar hjúpaðar olíu.
- Setjið maizenamjöl og kryddin nema saltið í skál og hrærið. Dreifið yfir franskarnar og veltið þeim vandlega upp úr kryddinu. Best er að salta franskarnar eftir á.
- Hitið ofninn í 215°C blástur.
- Setjið bökunarpappír á ofnplötu og raðið frönskunum á. Það er gott að hafa bara eitt lag svo þær bakist jafnt.
- Bakið franskarnar í 15 mín. Takið þá plötuna út og snúið þeim við og bakið áfram í aðrar 15 mín. Takið þær úr ofninum og saltið eftir smekk.






Unnið í samstarfi við Kjarnafæði.

