Það eru til ýmsar skemmtilegar útgáfur af svona marengs jólatrjám eða pavlovutrjám eins og þau eru oft nefnd. Þau eru einfaldari en þau líta út fyrir og eru sérlega falleg á jólaborðinu. Fersk hindberjasósan og berin passa sérlega með vanillurjómanum og sætunni í marengsnum. Möndlukeimurinn af marengsnum gefur smá marsípanbragð sem gerir ótrúlega mikið og bragðið verður aðeins sparilegra fyrir vikið.
Innihald:
Marengsbotnar:
5-6 eggjahvítur við stofuhita (170ml)
250g sykur
2 ½ tsk maizena mjöl
1 ¼ tsk borðedik
1/2 tsk möndludropar
Skraut: Fersk jarðarber, fersk hindber, flórsykur til að dusta yfir og fíngert greni
Hindberjasósa
Vanillurjómi
1. Byrjið á því að aðskilja eggin. Best er að gera eitt egg í einu og setja eina hvítu í einu í hrærivélaskál. Það er sérlega leiðinlegt að fá örðu af eggjarauðu út í allar hvíturnar ef það skyldi gerast.
2. Setjið sykurinn í matvinnsluvél og leyfið henni að vinna í smástund, það er best ef sykurinn er orðinn vel fínn.
3. Byrjið á því að þeyta eggjahvíturnar, þeytið í ca. 2 mín og byrjið þá að setja sykurinn út í í smá skömmtum, 1 msk í einu. Þegar allur sykurinn er kominn út í, þeytið þá áfram þar til allur sykurinn er uppleystur. Setjið þá maizena mjöl og edik saman við og þeytið í smástund þar til allt er samlagað.
4. Teiknið 7 hringi á bökunarplötu. Þvermálið þarf að vera: 15cm, 12cm, 10cm, 8.5cm, 6.5cm, 5cm og 4 cm. Það er í fínu lagi þó málin séu ekki nákvæmlega svona, 1cm til eða frá skiptir engu.
5. Setjið marengsinn í sprautupoka og sprautið hringina fallega á plötuna. Ef það verður afgangur af marengsnum sprautið honum þá bara í það mynstur eða toppa sem ykkur hugnast og geymið til að nota í marengsskál eða skreyta bakkann með. Bakið við 120°C blástur í 1 klst, látið kólna í ofninum, helst yfir nótt.
6. Þegar setja á tréð saman, er best að gera það bara rétt áður en það á að bera það fram. Hafið öll hráefni við höndina þegar þið byrjið.
7. Þeytið rjómann með vanillusykrinum og skolið og skerið jarðarber í frekar stóra bita.
8. Takið fram fallegan kökudisk eða bakka og setjið smá rjómaslettu á hann miðjan og setjið stærsta marengsinn á hann. Smyrjið lagi af rjóma á botninn og setjið söxuð jarðarber og nokkur hindber á rjómann, toppið með hindberjasósu og setjið að síðustu örlítinn rjóma þar yfir.
9. Takið fram grillpinna og stingið honum í miðjan botninn með oddhvassa endann upp. Rennið þá næstu stærð af marengs fyrir neðan á prjóninn, passið að prjóninn fari í miðjan botninn, endurtakið þetta þar til toppurinn er settur efst.
10. Skreytið hliðarnar og bakkann með ferskum berjum, setjið einhverja sæta tjörnu á toppinn og dustið yfir með flórsykri
11. Það gæti vafist fyrir einhverjum hvernig skera á tréð. Langbest er bara að skera í það að ofanverðu og nota skeið á móti. Þetta fer mjög fljótlega í stóra gúmmelaðiklessu á bakkanum og er þá borið fram eins og Eton mess marengs skál.






Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

