Þessar kökur eru svo æðislegar, góðar og fallegar! Þær eru líklega einhvers konar blanda af piparkökum og lagtertu og slá í gegn hjá hverjum þeim sem þær smakka. Mjúkar með miklu og góðu kryddbragði og silkimjúku vanillusmjörkremi. Svo eru þær líka svo jólalegar með kökuskrautinu frá Dr. Oetker sem setur punktinn yfir i-ið.
Okkur fullorðna fólkinu finnst þær lang bestar með rjúkandi heitum kaffibolla en krökkunum þykir ægilega gott að hafa heitt súkkulaði með!
Innihald:
320g hveiti
2 tsk. engifer
1/2 tsk. negull
1 tsk. kanill
2 tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
210g púðursykur
170g mjúkt smjör
1 stórt egg við stofuhita
1 tsk. vanilludropar
85g black treacle síróp (í rauðum dósum)
Smjörkrem
Kökuskraut frá Dr. Oetker
Aðferð:
- Hitið ofninn í 175°C blástur.
- Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið í með písk til að blanda öllu saman. Setjið til hliðar.
- Setjið smjörið og púðursykur saman í hrærivélaskál og þeytið vel í 4-5 mín. Skafið vel niður á milli.
- Setjið egg, vanilludropa og síróp saman við og þeytið áfram í nokkrar mínútur eða þar til blandan verður létt og ljós.
- Blandið þurrefnunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel á milli.
- Mótið litlar kúlur og setjið á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Gott er að hafa kúlurnar rétt aðeins stærri að þvermáli og krónupeningur.
- Bakið í 8-9 mín. Þegar þið takið plöturnar úr ofninum er gott að þrýsta strax létt á kökurnar til að fletja þær aðeins út. Færið svo á smákökugrind og kælið alveg.
Vanillusmjörkrem
75g mjúkt smjör
250g flórsykur
1 eggjarauða
Nokkur saltkorn
1 tsk. vanilludropar
Aðferð:
- Byrjið á því að þeyta smjörið vel.
- Bætið restinni af innihaldsefnunum saman við og þeytið í allavega 10 mín. Þannig verður það létt og gott.
Samsetning:
- Setjið jólalegt kökuskraut frá Dr. Oetker í skál.
- Parið tvær og tvær kökur saman sem eru áþekkar að stærð. Smyrjið aðra kökuna með kremi eða sprautið því á. Setjið svo aðra köku yfir og þrýstið þeim létt saman.
- Rúllið hliðunum á kökunum upp úr kökuskrautinu og leggið á grind eða plötu.







Unnið í samstarfi við OJK-ÍSAM

