Stórkostleg pítsa með camembert, ferskum fíkjum og hráskinku

Ekki hafa allir bændur smekk fyrir súrmat og þá er gott að geta gripið í eitthvað fljótlegt en ótrúlega ljúffengt. Því jú, bóndadagurinn er alltaf á föstudegi og þá er einmitt ekki alltaf stemning fyrir að enda vikuna á því að standa lengi í eldhúsinu þrátt fyrir að það eigi að gera vel við sinn mann. Í þessa pítsu nota ég tilbúinn pítsubotn en vissulega er hægt að gera eigið deig frá grunni. Samsetningin á álegginu er stórkostleg þó ég segi sjálf frá, fullkomin blanda af sætu og söltu, fersku og ofnbökuðu. Camembert osturinn fer sérstaklega vel með fíkjunum og restinni af álegginu.

Og til þess að toppa þetta alveg og hækka sparifaktorinn mæli ég með örlitlum rauðvínsdreitli með.

Innihald:

  • 1 pítsubotn, tilbúinn eða heimagerður – 375g
  • 1-2 msk. ólífuolía
  • 40g pizzaostur frá Gott í matinn
  • 1 stk. Dala camembert, skorinn í sneiðar
  • 3 ferskar fíkjur, skornar í 8 báta hver
  • 50g hráskinka
  • Klettasalat, magn eftir smekk
  • Ferskt rósmarín
  • Hunang, magn eftir smekk
  • Flögusalt

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 250°C með blæstri. Ef þið eigið pítsustein þá er snjallt að hita hann upp með ofninum.
  2. Takið pítsudeigið úr umbúðunum og mótið í ílangt brauð, best er að gera það í höndunum og nota ekki kökukefli, þannig verður botninn loftmeiri.
  3. Penslið ólífuolíu yfir botninn og stráið pizzaostinum yfir.
  4. Raðið camembert yfir pizzaostinn og helminginn af fíkjunum þar yfir.
  5. Setjið botninn í ofninn og bakið þar til kantarnir eru orðnir vel gylltir og osturinn bráðinn.
  6. Raðið þá hráskinkunni yfir ásamt fíkjum, klettasalati og rósmaríni. Stráið örlitlu flögusalti yfir og dreifið hunanginu síðast yfir allt saman.
  7. Njótið vel og ekki er verra að hafa rauðvín í léttari kantinum með.

Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading