Þessar smákökur eru mínar allra uppáhalds! Það er eiginlega skandall að ég sé ekki búin að birta þessa uppskrift hér fyrr en þær hrepptu annað sætið í smákökukeppni 2017. Ég hef aðeins breytt uppskriftinni síðan þá en bara til hins betra að mínu mati. Þessi samsetning kann að hljóma svolítið sérstök en ég bið ykkur um að gefa þessu séns. Þær eru léttar í sér, stökkar að utan en mjúkar að innan. Minna pínulítið á kókostoppa en svo koma stökkar möndlurnar, seigar en samt mjúkar apríkósurnar og hvíta súkkulaðið til viðbótar og allt verður fullkomið!
Innihald:
- 2 egg
- 2 dl. sykur
- 4 dl kókos, frá Rapunzel
- ½ dl. hveiti
- 1 dl. möndlur m/hýði, fínt saxaðar, frá Rapunzel
- 1 dl. þurrkaðar apríkósur, fínt saxaðar, frá Rapunzel
- 200g hvítt súkkulaði með kókos, frá Rapunzel
- Saxaðar möndlur og kókos til skrauts
Aðferð:
- Hitið ofn í 180°C með blæstri og klæðið tvær bökunarplötur með bökunarpappír.
- Setjið egg og sykur í skál og þeytið þar til létt og ljóst, þetta gæti tekið nokkrar mínútur.
- Blandið kókos, hveiti, möndlum og apríkósum saman við með sleikju. Athugið að ef apríkósurnar eru mjög klístraðar er gott að velta þeim upp úr hveitinu áður en þeim er blandað við eggjablönduna.
- Setjið deigið á plötu með 2 teskeiðum – ca. 1 tsk. hver kaka. Þær renna svolítið út í ofninum svo varist að hafa of lítið bil á milli.
- Bakið kökur í miðjum ofni í 10-12 mínútur. Takið þær út þegar þær eru fallega gylltar og kælið alveg.
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði eða örbylgjuofni og smyrjið yfir kaldar kökurnar. Stráið fínt söxuðum möndlum og kókos yfir súkkulaðið.









Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

