Ofureinföld súkkulaðihorn með söxuðum heslihnetum dökku súkkulaði

Þessi horn eru ótrúlega gómsæt, einföld og vegan ‏þar að auki. Það eru einungis örfá hráefni sem ‏þarf einmitt ‏þannig að það sé gott að eiga þau til og skella í hornin ef gesti bera að garði. Nú eða ef þið vilja útbúa eitthvað sérlega gómsætt í brönsinn eða afmælisveisluna. Bionella súkkulaðismjörið frá Rapunzel hentar alveg fullkomlega í fyllinguna, með ‏því helst hún mjúk en lekur þó ekki úr hornunum við baksturinn.

Innihald:

1 pakki frosið smjördeig

200g Bionella súkkulaðismjör frá Rapunzel

50g 85% súkkulaði frá Rapunzel, saxað

4 msk saxaðar heslihnetur

1 msk hlynsíróp‏

1 msk haframjólk

 

Aðferð:

  1. Takið smjördeigið úr frysti og látið ‏‏þiðna. Hitið ofninn í 200°C á blæstri.
  2.  Takið hverja plötu og fletjið örlítið út með kökukefli og skerið ‏þær ‏þvínæst horn í horn, mér finnst best að nota pizzaskera í ‏þ‏að.
  3.  Smyrjið súkkulaðismjöri á breiða endann og leyfið ‏því aðeins að ná niður á mjóa endann.
  4.  Stráið ‏því næst söxuðu súkkulaði og söxuðum heslihnetum yfir súkkulaðismjörið og rúllið upp frá breiða endanum. Skiljið aðeins eftir af söxuðu hnetunum.
  5.  Raðið hornunum á ofnplötu klædda bökunarpappír. Hrærið saman hlynsírópi og haframjólk og penslið hornin með blöndunni, stráið söxuðum heslihnetum yfir hornin og bakið í 15 – 20 mínútur eða þ‏ar til ‏þau eru orðin gyllt og falleg.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading