Þetta er líklega eitt það allra rosalegasta sem hefur komið úr mínu eldhúsi. Það er best að gera karamelluna fyrst og hana má gera með góðum fyrirvara. Eins er pekanhnetu krókantið eitthvað sem geymist vel og hægt gera með góðum fyrirvara líka. Þessar pönnukökur eru dásamlegar á jóla bröns borðið en einnig frábær eftirréttur en þá væri afbragð að bera fram ís eða rjóma með þeim. Karamellan ber áberandi bragð af piparkökum og pekanhneturnar passa fullkomlega saman við. Í pönnukökunum eru malaðir hafrar sem gefa þeim einstakt bragð sem og grísk jógúrt sem gerir þær extra mjúkar. Það er vissulega hægt að bera hvað sem er með fram með þeim en nákvæmlega þessi samsetning er algjörlega fullkomin.

Innihald:

1 bolli hafrahveiti (haframjöl sett í blandara og malað þar til fínt)

1/4 bolli hveiti

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk matarsódi

1/2 tsk sjávarsalt

3 msk sykur

2 stór egg við stofuhita

1 bolli grísk jógúrt eða súrmjólk

1 msk nýmjólk

2 tsk vanilludropar

Aðferð:

  1. Malið hafrana og setjið í skál ásamt öðrum þurrefnum.
  2. Setjið gríska jógúrt, eggin, og vanilludropana saman við og hrærið þar til kekkjalaust. Látið deigið bíða í nokkrar mínútur og bætið þá 1 msk af nýmjólk saman við. Leyfið deiginu aðeins að standa en það þykknar við það.
  3. Bakið pönnukökurnar við meðalhita og raðið þeim á grind á meðan þið bakið úr restinni af deiginu. Raðið á disk og berið fram með piparkökukaramellunni og pekanhnetu krókanti.

Pekanhnetu krókant

100g sykur
1 msk vatn
100g pekanhnetur
Aðferð:
  1. Setjið sykurinn og vatn á pönnu og bræðið.
  2. Þegar sykurinn er farinn að gyllast blandið hnetunum saman við og veltið þeim upp úr bræddum sykrinum. Veltið þeim vel og vandlega og gætið þess að þær séu vel húðaðar.
  3. Setjið bökunarpappír á disk og hellið hnetunum út á pappírínn. Dreifið úr þeim eins og hægt er og kælið.
  4. Saxið þær niður í þá stærð sem þið kjósið og berið fram með pönnukökunum. Ég mæli einnig með að geyma restina í lokuðu boxi og setja út á ís t.d.

Piparkökukaramella

200g sykur
90g smjör í bitum
1/2 bolli rjómi frá Örnu
2 tsk kanill
1 tsk negull
1/2 tsk engifer
Sjávarsalt á hnífsoddi
  1. Bræðið sykur við vægan hita.
  2. Þegar allur sykurinn er bráðinn og kominn gylltur litur á hann bætið smjörinu út í, hrærið rösklega og blandið rjómanum út í.
  3. Hrærið saman þar til karamellan er samfelld. Bætið kryddum út í ásamt salti og hrærið vel.
  4. Setjið í hreinar krukkur og kælið alveg áður en þið lokið þeim.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading